Neville sleppur við MSN-tríóið í kvöld Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. febrúar 2016 14:00 Suárez og Messi skoruðu sá um markaskorun í fyrri leik Barcelona og Valencia. Hvorugur þeirra verður með í kvöld. vísir/getty
MSN-tríóið ógurlega, Lionel Messi, Luis Suárez og Neymar, verður ekki með Barcelona í seinni leiknum gegn Valencia í undanúrslitum spænsku bikarkeppninnar í kvöld. Börsungar eru nánast komnir í úrslitaleikinn eftir 7-0 stórsigur í fyrri leiknum þar sem Messi skoraði þrennu og Suárez fernu.Sjá einnig: Gary Neville: Ein versta lífsreynslan á mínum ferli MSN-tríóið eru ekki einu fastamennirnir sem Luis Enrique hvílir í kvöld. Gerard Pique, Javier Mascherano og Andrés Iniesta verða ekki með en þeir eru á hættusvæði vegna gulra spjalda líkt og Suárez. Claudio Bravo, Dani Alves, Arda Turan, Sergio Busquets og Jordi Alba eru einnig hvíldir en ungir og efnilegir leikmenn fá tækifæri með Barcelona í kvöld. Gary Neville, knattspyrnustjóri Valencia, getur því andað örlítið léttar en hann er undir mikilli pressu vegna lélegs árangurs liðsins. Neville á enn eftir að fagna sigri í níu deildarleikjum sem stjóri Valencia og ofan á það kom svo afhroðið sem liðið beið í fyrri leiknum gegn Barcelona.Sjá einnig: Fyrrverandi fyrirliði Valencia: Neville verður ekki rekinn Börsungar munu að öllum líkindum mæta Sevilla í úrslitaleik bikarkeppninnar en Sevilla er í góðri stöðu eftir 0-4 sigur á Celta Vigo í fyrri undanúrslitaleik liðanna. Seinni leikur liðanna fer fram á morgun.Neville er í vandræðum.vísir/getty
Spænski boltinn Mest lesið Segist „hafa dáið fjórum sinnum“ og er nánast óþekkjanlegur í dag Sport Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Handbolti Síðasti séns á að vinna milljónir Fótbolti Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport EM í dag: Of langt gengið að kalla mig nautheimskan Fótbolti Messi í stuði í nótt og nældi sér í enn eitt metið Fótbolti Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Körfubolti Ajax riftir samningi Jordans Henderson Fótbolti United boðið að skrapa botninn á tunnunni Fótbolti Missir af leik á EM vegna höfuðmeiðsla Fótbolti Fleiri fréttir „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Sjá meira