Of há húsgjöld hjá öldruðum Snærós Sindradóttir skrifar 23. mars 2016 07:00 Þorsteinn Þorsteinsson, íbúi í Boðaþingi, fer fyrir íbúum. Hann borgar 270 þúsund krónur á mánuði í leigu, öryggishnapp og hússjóð. vísir/hanna „
Mér finnst að verið sé að níðast á gömlu fólki með því að láta okkur borga þetta,“ segir Þorsteinn Þorsteinsson, leigutaki hjá Naustavör, sem leigir út þjónustuíbúðir fyrir aldrað fólk við Boðaþing í Kópavogi. Þorsteinn er talsmaður íbúa í húsinu en þeir telja Naustavör hafa ofrukkað íbúa um húsgjöld um margra ára bil og hafa sett endurkröfuna í innheimtu en án árangurs. Naustavör er dótturfélag Sjómannadagsráðs sem rekur meðal annars dvalarheimili Hrafnistu og Happdrætti DAS. Leiga á íbúð, sambærilegri þeirri sem Þorsteinn býr í og er um 97 fermetrar, er tæpar 250 þúsund krónur á mánuði. Þess utan eru allir íbúar skyldubundnir til að borga fyrir öryggishnapp, óháð heilsufari. Hnappurinn kostar 5.000 krónur á mánuði fyrir hjón. Þá eiga allir íbúar að borga í hússjóð tæpar 14 þúsund krónur á mánuði. Styrinn stendur um hússjóðinn. Ekki er sérstakt bókhald utan um hann og illa hefur gengið að fá gögn um það í hvað greiðslan er nýtt. „Allar nótur eru stílaðar á Naustavör en ekki hússjóðinn. Við kröfðumst þess að því yrði breytt en það hlýtur ekki undirtektir. Við fengum skilgreiningu á því hvaða kostnað við erum að greiða og þá kom í ljós að hússjóður hefur verið notaður til að borga kostnað sem kemur rekstri sameignar ekkert við,“ segir Þorsteinn. Þegar íbúar óskuðu eftir skjölum um hreyfingar á reikningum kom í ljós að hússjóðurinn er meðal annars nýttur til að greiða fyrir stjórnunarkostnað, öryggissíma í lyftu, húsvörslu og brunavarnir. Þá er innifalið í hússjóðnum kostnaður við púttvöll sem er á lóð hússins. Allt þetta telur Þorsteinn að eigi að vera innifalið í húsaleigunni, sem er hærri en gengur og gerist á almennum markaði. Íbúar báru málið undir kærunefnd húsamála. „Úrskurður nefndarinnar var skýr um að allt ætti þetta heima undir húsaleigu. Þeir hjá Naustavör voru búnir að segja áður að þeir myndu virða úrskurð kærunefndar hver sem hann yrði, en svo breyttist það þegar hann var þeim óhagstæður,“ segir Þorsteinn. Eftir að málið fór til kærunefndar var ákveðið að íbúar fengju ekki frekari gögn um fjármagnshreyfingar frá Naustavör. Málið er því nú komið til innheimtu. Tekin verður ákvörðun um málshöfðun ef endurgreiðsla fæst ekki frá Naustavör. „Við erum engir auðmenn sem stöndum í þessu en okkur er ákaflega illa við að láta brjóta á okkur lög. Okkur finnst vera gert lítið úr gömlu fólki með þessu. Við erum ekki að þessu bara fyrir íbúana hér. Naustavör rekur fleiri íbúðir og við teljum afar líklegt að verið sé að reka þetta með sama máta þar.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 23. mars.
Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Innlent Fleiri fréttir Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fætinum Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Sjá meira