Viðreisn vill opinbera fyrirtæki sem leiðrétta ekki kynbundinn launamun Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 10. október 2016 15:31 Frá fundi Viðreisnar í dag. Vísir
Viðreisn kynnti í dag það frumvarp sem yrði fyrsta þingmál flokksins eftir Alþingiskosningarnar í haust. Flokkurinn vill útrýma óútskýrðum launamun kynjanna og gera það opinbert ef fyrirtæki og stofnanir greiða starfsmönnum sínum ólík laun vegna kynferðis en ekki málefnalegra sjónarmiða. Frumvarpið var kynnt á sérstökum blaðamannafundi Viðreisnar í dag. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á jafnréttislögum og lögum um ársreikninga þess eðlis að fyrirtækjum og stofnununum með 25 eða fleiri starfsmenn er gert skylt að undirgangast jafnlaunavottun samhliða ársreikningsskilum. Jafnlaunavottun er mælikvarði frá Staðlaráði Íslands sem notaður er til að mæla óútskýrðan kynbundinn launamun. Fyrirtæki og stofnanir með 25 starfsmenn eða fleiri munu þurfa að undirgangast þessa mælingu árlega og verða niðurstöðurnar birtar samhliða ársreikningi. Þannig yrði það gert opinbert ef fyrirtæki og stofnanir greiða starfsmönnum sínum ólík laun vegna kynferðis en ekki málefnalegra sjónarmiða. Því yrðu gert opinbert ef fyrirtæki og stofnanir fremja lögbrot í launastefnu sinni. Þannig verði „almannahagsmunir settir í forgang og óútskýrður kynbundinn launamunur upprættur“ að mati Viðreisnar. Kynbundinn launamunur, Samkvæmt nýjustu launakönnun VR er um tíu prósent kynbundinn launamunur á meðal félagsmanna félagsins. Á síðasta ári mældist kynbundinn launamaður á meðal félagsmanna Bandalags háskólamanna 11,7 prósent árið 2015. Kynbundinn launamunur er sá munur sem er á launum karla og kvenna að teknu tilliti til áhrifaþátta á laun á borð við aldur, starfsaldur, starfsstétt, atvinnugrein, menntun, mannaforráð, vaktavinna og vinnutími.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira