Kynferðisbrot kaþólskra presta: Hunsaði ábendingu um brot gegn drengjum Bjarki Ármannsson skrifar 3. mars 2016 12:00 George Pell kardináll, fjárhirðir Páfagarðs, viðurkennir að hafa ekki brugðist við þegar ungur drengur við kaþólskan skóla í Ballarat í Ástralíu sagði honum að einn prestanna við skólann væri að misnota drengi árið 1974. Vísir
George Pell kardináll, fjárhirðir Páfagarðs, viðurkennir að hafa ekki brugðist við þegar ungur drengur við kaþólskan skóla í Ballarat í Ástralíu sagði honum að einn prestanna við skólann væri að misnota drengi árið 1974. Þetta kom fram í vitnisburði Pell fyrir opinberri rannsóknarnefnd á vegum ástralskra stjórnvalda. Presturinn sem kvartað var undan umrætt sinn, Edward Dowlan, var í fyrra dæmdur í fangelsi fyrir að misnota unga drengi á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Hann hefur breytt nafni sínu í Ted Bales. Rannsókn stendur nú yfir í Ástralíu á meintum ítrekuðum kynferðisbrotum kaþólskra presta í Ballarat og Melbourne. Pell kardináll sagði í morgun að hann hefði átt að grípa til einhverra aðgerða vegna ásakananna á hendur Dowlan og sagði það „skelfilega tilviljun“ að fimm barnaníðingar hafi starfað við sama skólann og sömu sóknina í Ballarat á áttunda áratugnum.Fórnarlömb vilja áheyrn Páfans „Tilviljun eða hitt þó heldur, þetta var augljóslega kerfisbundið,“ segir Stephen Wood, einn þeirra sem máttu þola kynferðisbrot af hálfu prestanna og hafa ferðast til Rómar til að óska eftir fundi með Páfanum og með Pell. Wood segist í samtali við BBC hafa verið beittur kynferðisofbeldi frá ellefu ára aldri. Pell kardináll, sem bar vitni símleiðis frá Páfagarði, neitaði því í vitnisburði sínum að hafa mútað ungum dreng til að fá hann til að segja ekki frá misnotkun af hálfu Gerald Ridsdale, annars prests sem ítrekað braut gegn ungum drengjum. Ridsdale var frændi drengsins, sem hefur sagt að kardinállinn hafi mútað honum til þess að þegja. Peter Blenkiron, sem varaði Pell við hegðun Dowlan sem ungur drengur, er einnig meðal þeirra sem ferðast hafa til Rómar. Hópurinn segist vongóður um að fá áheyrn Frans Páfa á morgun.
Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Sjá meira