Starfsmannaleigum fjölgar mjög ört Þorgeir Helgason skrifar 14. október 2016 07:00 Halldór Grönvold aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, alþýðusamband íslands. Fréttablaðið/GVA „
Okkur óar svolítið við þessari þróun. Það er ekki algilt en meginreglan er sú að þessar starfsmannaleigur, bæði innlendar og erlendar, eru þekktar fyrir að skrapa botninn þegar kemur að kjörum og réttindum sem gilda á íslenskum vinnumarkaði,“ segir Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands. Starfsmannaleigur eru þjónustufyrirtæki sem leigja út starfsmenn gegn gjaldi til að sinna störfum á vinnustað og undir verkstjórn notendafyrirtækis. Árið 2013 var ein starfsmannaleiga starfandi hér á landi með tíu starfsmenn á sínum snærum. Í dag er fjöldi starfsmannaleiga 25 og áætlað er að rúmlega þúsund starfsmenn starfi fyrir þær, en langflestir starfsmannanna eru frá Austur-Evrópu. Þessa þróun má rekja til mikillar uppsveiflu í byggingariðnaði og ferðaþjónustu. Halldór segir flókið að fylgjast með því hvort starfsmannaleigurnar fari eftir lögum. „Það er erfitt fyrir okkur að ná sambandi við starfsfólkið sjálft. Bæði vegna þess að það óttast oft að tjá sig um laun og og starfskjör og vegna þess að það er mjög háð vinnuveitendum sínum,“ segir Halldór. ASÍ og stéttarfélögin hafa eflt mjög vinnustaðaeftirlit vegna uppkominnar stöðu. Til þess að bregðast við mögulegum kjarabrotum krefjast ASÍ og stéttarfélög þess að fá auknar eftirlitsheimildir með starfsmannaleigum og að Vinnumálastofnun, Vinnueftirlitið og ríkisskattstjóri fái úrræði til þess að stöðva starfsemi vegna alvarlegra og ítrekaðra brota. „Við hjá ASÍ sjáum fyrir að starfsmannaleigum muni fjölga ört og því er nauðsynlegt að við höfum þau úrræði sem við þurfum til þess að takast á við kjarabrot, komi þau upp,“ segir Halldór Grönvold. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Máttu tæma lónið Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Fleiri fréttir Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Sjá meira