Innlent

Fjármagnstekjuskattur setur strik í reikning Yrkjusjóðs Vigdísar

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Vigdís Finnbogadóttir.
Vigdís Finnbogadóttir. vísir/Stefán
„Öflugt skógræktarstarf er stundað í Mosfellsbæ fyrst og fremst vegna starfs Skógræktarfélags Mosfellsbæjar sem og stuðnings bæjarins við það verkefni,“ segir í bókun meirihluta bæjarráðs Mosfellsbæjar sem hafnaði ósk Yrkjusjóðs um 150 þúsund króna styrk.

Vigdís Finnbogadóttir stofnaði Yrkjusjóðinn í forsetatíð sinni 1992. Sjóðurinn úthlutar trjáplöntum til skólabarna. „Nú er svo komið að vegna fjármagnstekjuskatts og hærra verðs á plöntum er farið að þrengja verulega að möguleikum sjóðsins til úthlutunar,“ segir í styrkbeiðninni.

„Sjóðurinn hefur gefið börnum í Mosfellsbæ yfir 13 þúsund tré til gróðursetningar á undanförnum árum,“ bókaði bæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinna. Mikilvægt sé að Mosfellsbær styðji betur við bakið á skógrækt í sveitarfélaginu en nú sé gert.

„Verkefni Yrkjusjóðs hefur mikið fræðslugildi fyrir grunnskólabörn og er það hugsað sem hluti af umhverfisfræðslu. Íbúahreyfingin harmar því þá afstöðu bæjarráðs að styrkja ekki Yrkjusjóð en sjóðurinn hefur gefið börnum í Mosfellsbæ yfir 13 þúsund tré til gróðursetningar á undanförnum árum," bókaði fulltrúi íbúahreyfingarinnarog kvað mikilvægt að endurskoða þá upphæð sem veitt sé til skógræktar í Mosfellsbæ yfirhöfuð,.

„Bæjarráð vísar til þess að unnið er að heildstæðu grænu skipulagi, þar sem jafnframt verði tekið á skógrækt, á vettvagni umhverfissviðs," bókaðu fulltrúar meirihlutans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×