Innlent

Píratar áfram með meira fylgi en ríkisstjórnarflokkarnir til samans

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Fylgi Samfylkingar og VG er hnífjafnt, eða 7,8 prósent.
Fylgi Samfylkingar og VG er hnífjafnt, eða 7,8 prósent. Vísir/Ernir
Píratar eru enn með meira fylgi en ríkisstjórnarflokkarnir til samans, samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar MMR. Fylgi Pírata mælist nú 37 prósent sem er minnkun um 1,6 prósentu stig frá  síðustu könnun sem lauk 10. febrúar. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna mælist nú 36,2 prósent og hefur þokast heldur upp á við frá síðustu könnun.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 23,4 prósent borið saman við 21,6 prósent í síðustu könnun og 21,1 prósent í könnuninni þar áður, sem var 1. febrúar. Fylgi Framsóknarflokksins mældist 12,8 prósent borið saman við 10,8 prósent í síðustu könnun og 12,2 prósent í könnuninni þar áður.

Þá mælast Samfylkingin og Vinstri græn með jafnt fylgi, eða 7,8 prósent. Fylgi VG mældist í síðustu könnun 10,2 prósent og 11 prósent þar áður. Fylgi Samfylkingarinnar var 9,5 prósent í síðustu könnun og 9,4 prósent þar áður.

Fylgi Bjartrar framtíðar mældist 4,2 prósent borið saman við 3,7 prósent í síðustu könnun og 4,4 prósent þar áður. Fylgi annarra flokka mældist um og undir 1 prósent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×