Davíð og Guðni eru með sama hárskerann Jakob Bjarnar skrifar 26. maí 2016 10:45 Guðni og Davíð eru með sama rakarann. Sennilega einsdæmi á heimsvísu að þeir sem slást í forsetaframboði séu með sama hárskerann.
Svo skemmtilega vill til að Davíð Oddsson og Guðni Jóhannesson forsetaframbjóðendur, eru með sama hárskerann. Nefnilega Eirík Inga á Greifanum vestur í bæ. Líkast til er þetta einstakt á heimsvísu, og ef til vill til marks um smæð Íslands, að forsetaframbjóðendur einhvers lands séu með sama hárskerann. Og þó. Eftirgrennslan Vísis leiðir í ljós að meta má það sem svo að um 400 hárgreiðslu- og rakarastofur séu á landinu öllu. Misjafnt er hversu mikla rækt menn leggja við hárvöxtinn og að hafa hann snyrtilegan, en þannig er talað um að 45 stofur sé að finna á Eyjafjarðarsvæðinu. Rakara- og hárgreiðslustofur eru skráðar með snyrtistofum hjá Hagstofunni og hefur þessi geiri velt um einum og hálfum milljarði árlega. Meta má það sem svo að annað eins í þeim geiranum sé svört atvinnustarfsemi. Hvað sem þessu líður má heita víst að Eiríkur Ingi er fjölhæfur hárskeri því hárvöxtur þessara tveggja er ólíkur. Meðan Davíð státar af einhverjum þekktustu lokkum Íslandssögunnar, hárprúður með afbrigðum er hárvöxtur Guðna öllu hógværari. Þegar Vísir þýfgaði Eirík Inga um þessa sérstöku stöðu koma á daginn að hann lítur nánast á það sem svo að menn setjist í skriftastól þegar þeir koma til hans í klippingu. Trúnaðurinn er algjör. „Þetta eru viðskiptavinir og maður á ekki að vera að blaðra mikið um þetta. Persónuleg viðskipti og um það ríkir trúnaður,“ segir Eiríkur Ingi fastur fyrir og verst allra frétta. Við komumst ekki að neinum leyndarmálum um þessa tvo menn sem svo áberandi eru í umræðunni þessa dagana, eftir þessum leiðum. Því miður. Eiríkur Ingi hefur klippt Guðna lengi en Davíð er til þess að gera nýr viðskiptavinur hans, en Davíð var einn dyggasti viðskiptavinur Lýðs Sörlasonar rakara, en hann hætti nýverið störfum eftir 50 ár í bransanum. Davíð hefur nú leitað á náðir Eiríkur Ingi - en, ef einhvern tíma var mikilvægt að vera nýklipptur og fínn er það í forsetaframboði. Ímyndarfræðingar geta gleymt sínu bauki ef menn mæta til leiks eins og reittar hænur.
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira