Tónlistarhátíðin Secret Solstice verður í Laugardalnum þann 16.-19. júní en á sama tíma fer fram Evrópumótið í knattspyrnu.
Nú þurfa þeir hátíðargestir, sem að eru einnig miklir fótboltaunnendur, ekki að missa af einum einasta leik. Skipuleggjendur Secret Solstice hafa unnið hörðum höndum að uppsetningu á sportbar á svæðinu.
Barinn verður inni í tjaldi þar sem fótboltaunnendur geta gætt sér á alíslenskum mat eins og lambakjöti með Bernaise sósu, fiski, kjötsúpa og ísköldum drykkjum.
Á þessum Sportbar á svæðinu verða sýndir leikir mótsins á tíu skjám. Aðalleikurinn verður svo sýndur á aðalsviðinu laugardaginn 18.júní þar sem að Ísland spilar gegn Ungverjalandi og byrjar sá leikur kl 16.