Guðrún Ögmundsdóttir nýr stjórnarformaður UNICEF á Íslandi Birgir Olgeirsson skrifar 10. júní 2016 14:09 Guðrún Ögmundsdóttir. vísir/vilhelm
Guðrún Ögmundsdóttir er nýr stjórnarformaður UNICEF á Íslandi og tekur við formennsku af Svanhildi Konráðsdóttur. Guðrún er menntaður félagsráðgjafi og starfar sem tengiliður vistheimila í innanríkisráðuneytinu. Hún gegndi meðal annars þingmennsku um árabil. Guðrún tók sæti í stjórn UNICEF á Íslandi árið 2011. Fimm nýir stjórnarmenn bættust í stjórn UNICEF á Íslandi á aðalfundinum sem fram fór í gær. Þetta eru þau Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofnunar; Harpa Eir Þorleifsdóttir, menntaskólanemandi og fulltrúi ungmennaráðs; Kjartan Ólafsson, fjárfestir; Sigríður Thorlacius, tónlistarkona; og Styrmir Gunnarsson, fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins. Stjórnarmenn gegna allir störfum sínum í sjálfboðavinnu. Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, lét í gær af embætti sem stjórnarformaður en hún hafði gegnt stöðunni í sex ár og verið samtals níu ár í stjórn. Karl Blöndal, aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins, lét af embætti sem varaformaður en hann hafði gegnt stöðunni frá 2010 og tekið þátt í baráttu UNICEF á Íslandi nánast frá upphafi. Úr stjórninni vék einnig Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður, sem líkt og Karl hafði starfað með UNICEF á Íslandi nánast frá upphafi. Sara Mansour, nemandi við MH, kvaddi einnig stjórnina í gær en hún hafði setið þar í tvö ár sem fulltrúi ungmennaráðs. Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur, hvarf einnig úr stjórn í gær en hann hafði setið í stjórninni í þrjú ár. „Við hjá UNICEF á Íslandi þökkum þeim öllum ómetanlegt starf í gegnum árin. Það hafa verið forréttindi að hafa slíkan hóp af fólki með okkur og þeirra verður sárt saknað. Um leið bjóðum við nýja stjórnarmenn hjartanlega velkomna og hlökkum til samstarfsins,“ er haft eftir Bergsteini Jónssyni, framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi, í tilkynningu frá félaginu.
Mest lesið Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Innlent Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Erlent Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Erlent Fleiri fréttir Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Sjá meira