Á þriðja hundrað borgir hafa sett sér loftslagsmarkmið 10. júní 2016 07:00 Áætlað er að 2/3 jarðarbúa - 6 milljarðar - muni búa í borgum árið 2945. NordicPhotos/GettyImages
umhverfismál Vel á þriðja hundrað borgir um heim allan hafa sett sér loftslagsmarkmið til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda innan sinna borgarmarka og berjast þannig gegn loftslagsbreytingum. Fleiri hundruð borgir til viðbótar hafa blásið til samvinnu við ýmis samtök vegna verkefna sem tengjast loftslagsmálum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu alþjóðasamtakanna Worldwatch Institude, State of the World – Can a City be Sustainable? Þar segir að 228 borgir að lágmarki, sem finna má í öllum heimsálfum, með 439 milljónir íbúa hafi sett sér loftslagsmarkmið. Það er þar – hjá sveitarfélögum, segja höfundar skýrslunnar, sem sóknarfærin gætu helst legið við að ná þeim markmiðum sem þjóðir heims hafa sett sér og birtast í skuldbindingum þeirra í nýjum loftslagssamningi Sameinuðu þjóðanna sem var dreginn upp í París í desember. Því eru það íbúar borga heimsins sem gegna lykilhlutverki í að ná því markmiði að halda hlýnun jarðar innan marka sem jarðarbúar geta lifað við. Tveir af höfundum skýrslunnar, þeir Michael Renner og Tom Prugh, segja að í ljósi þess hversu verkefnið er risavaxið þá dugi ekkert annað til en róttækar aðgerðir á þéttbýlustu svæðunum. Breyta verði í grundvallaratriðum hvernig borgir eru hugsaðar hvað varðar neyslu- og úrgangsmál og allt til þess hvernig þær líta út og eru uppbyggðar. Borgir heims hýsa í dag rúmlega helming mannkyns og standa fyrir 70% af orkuþörf og losun gróðurhúsalofttegunda. Ef fer sem horfir munu sex milljarðar manna lifa í borgum árið 2045, eða tveir þriðju jarðarbúa. Orkuþörf borga mun þrefaldast fyrir 2050 miðað við árið 2005. Ekki að furða þar sem iðnaðaruppbygging hverfist um borgir heims, þó hver og ein þeirra sé með mjög misjafnlega stórt vistspor í dag, metið á hvern íbúa. Á loftslagsfundi á vegum Reykjavíkurborgar seint á síðasta ári kom fram í máli Hjálmars Sveinssonar, formanns umhverfis- og skipulagsráðs, að á Parísarráðstefnunni í desember hefðu yfirvöld borga verið áberandi enda væri mikilvægt að borgir tækju höndum saman um að bregðast við vandanum þar sem meirihluti mannkyns byggi í borgum. Brýnt væri að þær legðu fram skýrar áætlanir varðandi það hvernig dregið yrði úr losun gróðurhúsalofttegunda og úrgangi. Hjálmar sagði að í Aðalskipulagi Reykjavíkurborgar væri áætlun um að draga úr útblæstri um 73% fyrir árið 2050.svavar@frettabladid.is
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira