Deilt um stöðu kvenna innan norsku lögreglunnar Atli Ísleifsson skrifar 17. febrúar 2016 10:03 Formaður jafnréttisnefndar norsku lögreglunnar segir að konum sé mismunað innan lögreglunnar. Vísir/AFP
Talsverð umræða hefur skapast um stöðu kvenna innan norku lögreglunnar eftir að Marit Fostervold, aðstoðarlögreglustjóri í Þrændalögum, dró umsókn sína um starf viðbúnaðarstjóra norsku lögreglunnar til baka í fyrr í mánuðinum.Í frétt Adressa um málið kemur fram að Fostervold hafi dregið umsókn sína til baka viku áður en skipað var í stöðuna. Segist hún hafa tekið ákvörðunina eftir að hafa fengið símtal frá skrifstofu ríkislögreglunnar þar sem henni hafi verið tilkynnt að annar umsækjandi, Knut Smedsrud, skrifstofustjóri hjá ríkislögreglustjóra, væri fyrsti kostur, en að hún væri engu að síður beðin um að útvega lista yfir meðmælendur. Adressa segir að ráðningin hafi vakið mikið umtal innan lögreglunnar í Noregi. Fostervold hafi sýnt fram á að hún hefði viðtæka reynslu sem myndi nýtast í starfinu. Þá sé ljóst að hlutfall kvenstjórnenda innan norsku lögreglunnar er mjög lágt og hefur lögregla sætt gagnrýni fyrir hvernig tekið sé á málum kvenna innan stéttarinnar. Nasim Karim, formaður jafnréttisnefndar norsku lögreglunnar, segir að konum sé mismunað innan lögreglunnar og að kynferðisleg áreitni sé mikið vandamál. Greint var frá því á föstudaginn að Knut Smedsrud hafi verið ráðinn í stöðuna. Ríkislögreglustjórinn Odd Reidar Humlegård segist ekki óska þess að fram fari sérstök óháð rannsókn á ráðningarferlinu, heldur segist ætla bjóða Fostervold til fundar til að ræða málið. Alls sóttu þrettán manns um stöðuna.
Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira