Björn Daníel er hærri en bæði Eiður Smári og Hannes Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. apríl 2016 10:15 Björn Daníel Sverrisson. Vísir/Getty
Björn Daníel Sverrisson er með hæstu meðaleinkunnina hjá Verdens Gang af íslenskum leikmönnum sem spila í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta en fjórar umferðir eru nú að baki. Björn Daníel Sverrisson spilar með liði Viking sem er í sjötta sæti deildarinnar og hefur hann fengið 5,75 í meðaleinkunn sem skilar honum upp í sæti 9 til 16 á topplista VG. Björn Daníel er efstur þrátt fyrir að hafa aðeins fengið fjóra í einkunn í síðasta leik en hann var valinn besti maður vallarins í fyrstu þremur leikjunum. Tveir Íslandsvinir eru í hópi þeirra átta sem eru með hæstu meðaleinkunnina en það eru þeir André Hansen, markvörður Rosenborg og fyrrum leikmaður KR og svo Babacar Sarr, miðjumaður Sogndal og fyrrum leikmaður Selfoss. Eiður Smári Guðjohnsen hjá Molde og Hannes Þór Halldórsson hjá Bodø/Glimt koma næstir Birni Daníel af íslensku leikmönnunum en þeir eru í 20. til 33. sæti með 5,50 í meðaleinkunni. Eiður Smári hefur komið með beinum hætti að þremur mörkum ( eitt mark og tvær stoðsendingar) í síðustu tveimur leikjum Molde. Hólmar Örn Eyjólfsson hjá Rosenborg er síðan í 34. til 41. sæti en Rosenborg-liðið er í efsta sæti deildarinnar og hefur aðeins fengið á sig eitt mark í fyrstu fjórum leikjum sínum. Fimmti hæsti Íslendingurinn á þessum lista er síðan Guðmundur Kristjánsson hjá Start en hann er í 42. til 57. sæti með 5,25 í meðaleinkunni. Það er hægt að sjá allan topplistann hér.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti HM-dómara neitað um inngöngu í Bandaríkin Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Rice verður varafyrirliði enska landsliðsins á HM FIFA: Fær ekki að dæma á HM vegna komubannsins Olise með þrennu en Mbappé náði ekki að jafna markametið Gakpo skoraði tvö mörk í fimmtugasta landsleiknum Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Wiegman sendi kveðju til Íslands: „Gangi ykkur vel“ Platini með sakamálaákæru á hendur forseta FIFA Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM HM-dómara neitað um inngöngu í Bandaríkin Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega Eriksen kominn heim og einbeitir sér að fótbolta með krökkunum Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Van Persie rekinn frá uppeldisfélaginu Svona var fundur Íslands fyrir leikinn við heimsmeistarana Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Hetjunni haldið í yfirheyrslu í sjö tíma við komuna á HM Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Löggan þorði ekki að þiggja miða HM-minning: Fékk ekki þrennuna sína fyrr en þrjátíu árum eftir dauða sinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Sjá meira