Fjúkandi trampólín og ölvað fólk Samúel Karl Ólason skrifar 5. október 2016 17:38 Mynd/Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur staðið í mismunandi verkefnum í dag. Þar á meðal var óskað eftir aðstoðar lögreglu vegna fjúkandi trampólíns, lausri þakplötu, þjófnaði í verslunum og vegna ölvunar fólks í miðbænum. Í hádeginu var lögreglan kölluð til vegna konu sem var í annarlegu ástandi í andyri hótels í miðbænum. Hún var ekki gestur á hótelinu og var henni vísað á brott eftir viðræður við lögreglu. Þá slasaðist ölvaður maður á höfði þegar hann féll í miðbænum. Hann hlaut skurð á höfði og var fluttur með sjúkrabíl á slysa- og bráðadeild í Fossvogi. Þá var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna manns sem svaf ölvunarsvefni í miðbænum. Samkvæmt dagbók lögreglunnar var um að ræða óreglumann sem hafði ekki í nein hús að vernda og var hann aðstoðaður við að komast í gistiskýli fyrir heimilislausa karlmenn. Trampólín fauk á umferðarskilti í Hafnarfirði. Þegar lögregluþjóna bar að var eigandi þess þó að fjarlægja það og tryggja. Þá var lögreglu gert viðvart um lausa þakplötu í Laugadalnum. Eigandi hússins var látinn vita og gerði hann ráðstafanir til að tryggja plötuna. Tveir þjófnaðir í matvöruverslunum voru tilkynntir í dag. Annar í Breiðholti og hinn í Grafarvogi. Í breiðhöldinu höfðu tveir piltar ákveðið að skrópa í skóla og stálu þeir tyggjói í verslun. Í Grafarvogi stálu tveir piltar sælgæti úr verslun. Allir voru þeir ósakhæfir vegna aldur og var foreldrum þeirra gert viðvart.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Fleiri fréttir Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Sjá meira