Lögreglustjórar leggjast gegn því að ríkislögreglustjóri sinni innra eftirliti með lögreglu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 25. maí 2016 10:05 Haraldur Johannesson er ríkislögreglustjóri. Vísir/GVA
Lögreglustjórafélag Íslands leggst alfarið gegn því að ríkislögreglustjóra verði falið innra eftirlit með störfum lögreglu eins og lagt er til í frumvarpi Ólafar Nordal innanríkisráðherra um breytingar á lögreglulögum. Að mati félagsins er um grundvallarbreytingu á stjórnun löggæslu í landinu að ræða sem ekki hafi verið rædd við Lögreglustjórafélagið, hvorki af innanríkisráðuneytinu né af embætti ríkislögreglustjóra. Þetta kemur fram í umsögn félagsins um frumvarpið. Þar segir að allan faglegan undirbúning vanti fyrir ákvæði sem feli ríkislögreglustjóra að fara með innra eftirlit með störfum lögreglu en í dag er það svo að allir lögreglustjórar á landinu eru með innra eftirlit hjá sér. Telur Lögreglustjórafélag Íslands að ef setja eigi sérstakt innra eftirlit þá sé tilefni til að kanna hvort að því sé ekki betur komið utan lögreglunnar heldur en innan hennar. Þá er því hafnað í umsögn félagsins að með lagabreytingunni sé aðeins verið að festa í sessi hlutverk ríkislögreglustjóra. Um miklar breytingar sé að ræða þar sem innra eftirliti sé bæði veitt mikið vægi og mikið vald þar sem tekið sé fram í greinargerð með frumvarpinu að í því sé byggt á víðari merkingu hugtaksins innra eftirlit. Það nái því einnig til „stjórnunarlegs eftirlits en í ljósi fjárhagslegs sjálfstæðis lögregluembættanna verður þetta eitt meginviðfangsefni innra eftirlit,“ eins og segir í umsögninni.
Tengdar fréttir Þingmenn skoða leiðir til innra eftirlits með lögreglu Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hyggst taka til skoðunar hvernig best sé að koma á fót innra eftirliti með störfum lögreglu. 7. janúar 2016 19:30 Haraldur ríkislögreglustjóri: Það líðst engin spilling Ríkislögreglustjóri segir spillingarmál innan lögreglunnar sjaldgæf. Hann segir samskiptavanda hjá LRH hugsanlega mega rekja til þess að í fyrsta sinn sé kona í forystusætinu. 8. janúar 2016 06:00 Vill ekki að lögreglan rannsaki lögreglumenn: „Ótækt að koma mönnum í þessa aðstöðu“ Formaður Landssambands lögreglumanna segir að lögreglumenn vilji óháð eftirlit. 6. janúar 2016 12:00 Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira
Þingmenn skoða leiðir til innra eftirlits með lögreglu Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hyggst taka til skoðunar hvernig best sé að koma á fót innra eftirliti með störfum lögreglu. 7. janúar 2016 19:30
Haraldur ríkislögreglustjóri: Það líðst engin spilling Ríkislögreglustjóri segir spillingarmál innan lögreglunnar sjaldgæf. Hann segir samskiptavanda hjá LRH hugsanlega mega rekja til þess að í fyrsta sinn sé kona í forystusætinu. 8. janúar 2016 06:00
Vill ekki að lögreglan rannsaki lögreglumenn: „Ótækt að koma mönnum í þessa aðstöðu“ Formaður Landssambands lögreglumanna segir að lögreglumenn vilji óháð eftirlit. 6. janúar 2016 12:00