Innlent

Með rýting í baki við Miklubraut

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Nokkur útköll voru hjá lögreglu í nótt.
Nokkur útköll voru hjá lögreglu í nótt. Vísir/KTD
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk í nótt tilkynningu um að maður við Miklubraut væri með rýting í bakinu. Maðurinn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Kona og maður handtekinn og vistuð í fangageymslu fyrir rannsókn málsins.

Þá var tilkynnt í gær um líkamsárás sem átti sér stað skömmu áður á bifreiðastæði við Iðufell. Maður var barinn með kylfu og vökva skvett í andlit hans. Árásarmennirnir voru tveir og gat árásarþoli nafngreint þá. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×