Beit stykki úr tungu nauðgarans Jóhann Óli Eiðsson skrifar 13. maí 2016 13:30 Lögreglann bar kennsl á manninn eftir blóðrannsókn. vísir/getty
Nítján ára frönsk stúlka varðist nauðgun síðastliðinn sunnudag með því að bíta hluta tungunnar úr árásarmanni sínum. Maðurinn var handtekinn í fyrradag og hefur verið ákærður fyrir tilraun til nauðgunar. Sagt er frá á ladepeche.fr. Atburðurinn átti sér stað í borginni Toulouse. Stúlkan var á leið heim til sín og hafði á tilfinningunni að einhver væri að elta hana. Þegar hún kom að lyftunni, í húsinu þar sem hún býr, gekk maðurinn upp að henni og spurði hvort hún vildi stunda kynlíf með honum. Viðbrögð mannsins, sem er 24 ára gamall, við afdráttarlausri neitun stúlkunnar voru að stökkva á hana og reyna að afklæða hana. Stúlkan streittist á móti í upphafi en ákvað síðan að leyfa árásarmanni sínum að kyssa sig. Það tækifæri nýtti hún með því að bíta í tungu hans og gott betur því hún beit stórt stykki úr tungunni. Maðurinn flúði við það af vettvangi. Hann var handtekinn þremur dögum síðar en lögreglan bar kennsl á hann með því að rannsaka blóð úr honum sem fannst á vettvangi. Maðurinn bíður nú réttarhalda. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem sambærileg varnaraðferð kemst í fréttirnar en hið sama átti sér stað í Suður-Karólínu ríki í Bandaríkjunum í október í fyrra.
Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Fleiri fréttir Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Sjá meira