Leynileg upptaka af húsfundi brot á lögum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. apríl 2016 15:43 Úbúar í húsinu voru ekki meðvitaðir um að verið væri að taka húsfundinn upp. vísir/vilhelm
Persónuvernd hefur úrskurðað að með því að hljóðrita húsfund án samþykkis fundargesta hafi eigendur tveggja íbúða í fjölbýlishúsi á Íslandi gerst brotlegir við lög. Úrskurður þess efnis var kveðinn upp þann 6. apríl. Uppi er ágreiningur milli eigenda íbúða í fjölbýlishúsinu vegna lagnaframkvæmda og kostnaðarþátttöku. Af þeim sökum leitaði einn íbúðareigandi til Húseigendafélagsins þar sem honum var greint frá því að nágrannar hans hefðu einnig leitað til félagsins. Ættu þeir upptökur af húsfundi sem báðir aðilar hefðu setið. Íbúi í húsinu hefði óskað eftir áliti kærunefndar húsamála á ágreiningnum og afhent fundargerð húsfundarins. Þar kom fram að fundargerðin hefði verið skrifuð upp eftir upptöku. Íbúðaeigendurnir sem leituðu til Persónuverndar og kvörtuðu segjast ekki hafa verið meðvitaðir um upptökuna og aldrei hafa gefið leyfi fyrir þeim. „Þá sé þeim ekki ljóst hvers konar upptökubúnaður hafi verið notaður. Mögulegt sé að upptökurnar séu sundurlausar og klipptar saman,“ segir í úrskurðinum.Neitaði að staðfesta fundargerðina Engin fundargerð var rituð á fundinum en var rituð síðar. Var þess óskað að annar kvartendanna staðfesti hana en það neitaði hann að gera þar sem hún hefði verið rituð eftir fundinn og væri að hans mati efnislega röng. Persónuvernd óskaði eftir viðbrögðum frá þeim sem hljóðrituðu fundinn en fengu engin svör sem sneru að umkvörtunarefninu. Þar sem upplýsingar á hljóðupptökunum voru persónugreinanlegar var málið talið falla undir gildissvið laga um persónuvernd. Engin lög voru talin réttlæta upptökurnar og var vinnsla upplýsinganna ekki talin sanngjörn þar sem þeir sem voru á fundinum höfðu ekki vitneskju um hana. Upptökurnar hafi ekki samræmst lögum og upplýsa hefði átt fundargesti um upptökuna.Nánar má lesa um úrskurð Persónuverndar hér.
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Skakkur á rafskútu Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fleiri fréttir Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Sjá meira