Keppa í drónaflugi: Á fleygiferð um leikvang Miami Dolphins Samúel Karl Ólason skrifar 27. janúar 2016 13:30
Stofnuð var ný íþróttadeild í fyrra sem gengur út að fljúga sérsmíðuðum drónum á fleygiferð um þrönga ganga og skarpar beygjur. Drone Racing League eða DRL er enn ekki mikið á milli tannanna á fólki, en hefur vakið þó nokkra athygli á Youtube undanfarið. Markmið DRL er að koma á laggirnar stórri íþrótt sem líkja megi við Formúlu 1. Þegar hafa margir fjárfest í deildinni og þeirra á meðal eru Stephen Ross, eigandi Miami Dolphins, og Matt Bellamy, söngvari hljómsveitarinnar Muse. Flugmennirnir koma sér þægilega fyrir og setja upp sérstök gleraugu sem sýna beint frá myndavélum á drónunum. Enn sem komið er eru gæði útsendinganna ekki mjög góð. Séu gæðin bætt á útsendingin það til að hökta eða „lagga“ og við það verður flugmönnunum bumbult. Þó eru aðrar HD myndavélar á drónunum sem notaðar eru til að gera myndbönd og þætti um keppnirnar eftir á. Nú þegar er búið að halda tvö mót og stendur til að halda fjögur í viðbót á þessu ári. Mótin hafa verið haldin í yfirgefnu atvinnuhúsnæði í New York sem og í leikvangi Miami Dolphins. Út af vandræðunum sem nefnd voru hér að ofan, er ekki hægt að sýna frá drónunum í beinni útsendingu, ennþá. Hins vegar vonast forsvarsmenn að myndbönd frá keppnunum nái miklum vinsældum. Hægt er að fylgjast með keppninni sem áhorfandi. Neon ljósum er komið fyrir á brautunum, sem og drónunum og reyk er dælt inn á keppnisbrautina. Reykurinn hjálpar til við að fylgjast með drónunum þegar þeir eru á hvað mestum hraða. Enn sem komið eru einungis flugmenn sem hafa vakið athygli í öðrum keppnum að keppa í DRL. Seinna á þessu ári mun deildin þó leita að fleiri flugmönnum til að taka þátt. Hér að neðan má sjá nokkur myndbönd frá DRL, en fleiri má sjá á Youtubesíðu þeirra. Hvað er DRL Gates of Hell brautin Brotlendingar
Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira