Andlit Íslands birtist 25. júní Gunnar Hersveinn skrifar 21. júní 2016 07:00 „Allt hefur svip, andlitsfall og ímynd. Forseti Íslands er eitt af mörgum andlitum Íslands.“ Andlit Ísland sem skiptist í marga þætti, einn þeirra er náttúran. Stórbrotið andlit hennar er meðal annars sett saman úr margskonar múlum; hamramúli, fjarðarmúli; einnig klettahyrnu, núp og enni, svo ekki sé minnst á önnur andlitsföll eins og gljúfrur, jökla, háhitasvæði, vatnsríkið og allt það. Gildin (dyggðir, tilfinningar, viðhorf) eru annar þáttur í ásýnd Íslands. Hvaða mannkostum er teflt fram á Íslandi, hvaða kosti er verið að efla um þessar mundir og hvaða gallar eru á undanhaldi? Er verið að kenna heiðarleika og virðingu, rækta kærleika og festa jafnrétti í sessi – eða ekki? Eða er lymskulega mælt með þátttöku í spillingu og er græðgin taumlaus? Er ef til vill alið á ótta við mótspyrnu? Þarf fólk að hugsa sig tvisvar um áður en það segir skoðun sína?Þjóðin vill ganga til góðs Það orkar sennilega tvímælis að lýsa því yfir hver þjóðgildi Íslendinga eru á þessari stundu en þó má greina í gegnum söguna þrá til að efla traust, heiðarleika, menntun og að teljast vera dugleg þjóð, bjartsýn og að hafa löngun til að lifa heilsusamlegu líferni. Þjóðin vill ganga til góðs en veit ekki alveg í hvaða átt ber að stefna. Á 21. öldinni hafa, sem betur fer, borgarar sem þora að mótmæla yfirgangi og óréttlæti, orðið hluti af þeim svip sem birtist þegar fólk hugsar um Ísland. Hugrökk þjóð hafnar ofstæki og knýr hrokafulla stjórnmálamenn til að stíga niður af stöllum sínum. Það er lofsverður mannkostur að þora þrátt fyrir hræðsluáróðurinn. Borgarar annarra þjóða líta á þá sem búa á Íslandi sem upplitsdjarfa þjóð. Hún vill vissulega standa undir því orðspori og hún getur það ef hún vill, enda segja margir oft: Vilji er allt sem þarf. Ef hún vill vera hugrökk, þarf hún að hætta að sleikja svokallaðar smjörklípur og að slökkva elda þar sem ekkert brennur nema villiljós. Auglit, ásján, ásjóna, ásýnd; fés, múli, smetti, snápur, snoppa, svipur, trýni, upplit. Allt hefur svip, andlitsfall og ímynd. Forseti Íslands er eitt af mörgum andlitum Íslands. Sá eða sú sem gegnir embættinu hverju sinni tekur hlutverkið alvarlega og vill væntanlega gera sitt besta. Það skiptir máli hvaða áherslur viðkomandi setur og hvernig hann gerir það, því slík viðleitni mótar andlit Íslands.Óhræddur hugsjónamaður Áherslur Andra Snæs Magnasonar rithöfundar vísa í heillavænlega átt fyrir þjóðina. Hann hefur markvisst unnið að betra samfélagi í störfum sínum og er óhræddur hugsjónamaður sem býr yfir nægu hugrekki til að segja það sem þarf að segja og skora á fólk til að hugsa málin og taka ákvarðanir óháð hagsmunaaðilum. Andri Snær er friðsemdarmaður en einnig feikilega öflugur baráttumaður og af þeim sökum yrði hann mikilsverður þáttur í ásýnd og ímynd landsins. Hann yrði rödd sem tæki þátt í því að bjarga verðmætum þegar þess er þörf m.a. vegna þess að forseti getur sett mál á dagskrá. Hann gæti til dæmis boða til óvæntra blaðamannafunda um hálendið, tungumálið og næstu stjórnarskrá ef hann teldi almannahagsmunum ógnað. Andri getur verið beittur penni og orðhvöss tunga en sérkenni í framkomu hans eru þrátt fyrir það vinsemd og sátt, auk þess að búa yfir skarpri sýn á betri framtíð. Slíkur forseti yrði engin lydda, heldur óstýrilátur gagnvart skammsýni og þröngsýni. Andri Snær er djarfmæltur í þeim málaflokkum sem hann teflir fram um land, tungu og þjóð. Tökum hann okkur til fyrirmyndar. Ekki missa af gullnu tækifæri til að móta ásýnd Íslands með vali á næsta forseta Íslands. Valið hefur áhrif í nokkrum málaflokkum sem falla m.a. undir stjórnarskrá, náttúruvernd og tungumál. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Forsetakosningar 2016 Skoðun Mest lesið Halldór 27.04.2024 Halldór Óbærileg léttúð VG Jakob Frímann Magnússon Skoðun Takk fyrir vettlingana! Hópur foreldra leikskólabarna í Reykjavík Skoðun Er fyrirmyndarríkið Ísland í ruslflokki í sorpmálum? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Satt og logið Bryndís Schram Skoðun Í átt að velsæld á nokkrum mínútum Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Er forsetaframbjóðendum umhugað um dýravernd? Árni Stefán Árnason Skoðun Hvað varð um samveruna? Hildur Gunnarsdóttir Skoðun Að hafa áhrif á nærumhverfi sitt Guðbrandur Einarsson Skoðun Þegar þú vilt miklu meira bákn Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Í átt að velsæld á nokkrum mínútum Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Er fyrirmyndarríkið Ísland í ruslflokki í sorpmálum? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Takk fyrir vettlingana! Hópur foreldra leikskólabarna í Reykjavík skrifar Skoðun Hvað varð um samveruna? Hildur Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Listir og velferð Kristín Valsdóttir skrifar Skoðun Er forsetaframbjóðendum umhugað um dýravernd? Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Þegar þú vilt miklu meira bákn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Óbærileg léttúð VG Jakob Frímann Magnússon skrifar Skoðun Að hafa áhrif á nærumhverfi sitt Guðbrandur Einarsson skrifar Skoðun Framtíð innri markaðarins Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Satt og logið Bryndís Schram skrifar Skoðun Alþjóðlegi leiðsöguhundadagurinn Sigþór U. Hallfreðsson skrifar Skoðun Framsókn leggst ekki í duftið Guðmundur Birkir Þorkelsson skrifar Skoðun Að dreyma um alheim góðvildar Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld Birna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar þú ert báknið Gabríel Ingimarsson skrifar Skoðun Svik við þjóðina Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Innivist er mikilvægasti þátturinn við hönnun íbúða! Ásta Logadóttir skrifar Skoðun Brautryðjandinn Baldur Þóra Björk Smith skrifar Skoðun Katrín og Gunnar? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ótímabundin leyfi, ótímabundið náttúruníð Elvar Örn Friðriksson skrifar Skoðun Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku? Dögg Guðmundsdóttir,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er stóraukin lýðræðisþátttaka ekki verðlaunaefni? Einar Freyr Elínarson skrifar Skoðun Árangur gegn verðbólgu Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir skrifar Skoðun Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar er híbýlaauður? Anna María Bogadóttir skrifar Skoðun Áhugaverðir tímar kalla á áhugaverðan forseta Cody Alexander Skahan skrifar Skoðun Biskup í tengslum Guðrún Karls Helgudóttir skrifar Skoðun Guðrún biskup – til heilla fyrir okkur öll! Arndís Steinþórsdóttir,Glóey Helgudótir Finnsdóttir skrifar Skoðun Dýravelferðarmartröð af áður óþekktri stærð Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Sjá meira
„
Skoðun Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku? Dögg Guðmundsdóttir,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar
Skoðun Guðrún biskup – til heilla fyrir okkur öll! Arndís Steinþórsdóttir,Glóey Helgudótir Finnsdóttir skrifar