Vilja 150 milljónir og níu lóðir í skiptum fyrir jarðir á Arnarnesi Ingvar Haraldsson skrifar 28. janúar 2016 07:00 Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ.
Landeigendurnir á Arnarnesi vilja fá 150 milljóna króna peningagreiðslu auk níu lóða í fyrirhugaðri byggð í Hnoðraholti í Garðabæ í skiptum fyrir fjögur svæði á Arnarnesi. Garðabær segist tilbúinn að greiða 50 milljónir fyrir lóðirnar. Landeigendurnir fóru fram á að Garðabær afhenti fjölbýlishúsalóð fyrir 12 íbúða fjölbýli, fjórar raðhúsa- eða parhúsalóðir og fjórar einbýlishúsalóðir. Bæjarráð Garðabæjar hafnaði tilboðinu og bókaði að í því fælist verulegt frávik frá þeim hugmyndum sem Garðabær hefur kynnt til lausnar í málinu. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segir að meta mætti lóðirnar sem landeigendur vildu fá í skiptum að lágmarki á 150 milljónir króna og tilboðið í heild á 300 milljónir króna. Upphæðin væri sexfalt hærri en það sem Garðabær teldi sanngjarnt og því hafi tilboði landeigendanna verið hafnað með svo skýrum hætti. Gunnar segir málið hafa komið upp í kjölfar breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar á árunum 2011 og 2012. Verslunarlóðum í eigu landeigenda við Hegranes og Æðarnes hefði verið breytt í íbúðarlóðir auk þess að ágreiningur sé milli bæjarins og landeigenda um eignarhald á Háholti. Þá vilji landeigendur að bærinn kaupi fjöruna á norðanverðu Arnarnesi. „Garðabær telur sér ekki skylt að kaupa fjöruna nema einhverjir sérstakir hagsmunir séu fólgnir í því að bærinn eignist fjöru.“ Viðræður við landeigendur muni því halda áfram að sögn bæjarstjórans.
Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Sjá meira