Greiða tvisvar til baka á tæpum fimm árum Guðsteinn Bjarnason skrifar 19. maí 2016 07:00 Fólk þvær af sér fötin í flóttamannabúðum við höfnina í Piraeus á Grikklandi. vísir/EPA
Þegar flóttafólk kemur til Evrópulanda fylgir því kostnaður í fyrstu, en innan fimm ára má búast við því að ríkin hafi fengið allan þann útlagða kostnað endurheimtan tvisvar sinnum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá TENT-samtökunum, sem vinna að því að aðstoða flóttafólk og koma í veg fyrir að fólk sé á vergangi víða um heim. Efnahagur ríkjanna styrkist við komu flóttafólks meðal annars vegna þess að hinir nýju íbúar skapa fleiri störf, auka eftirspurn eftir vörum og þjónustu, og auka skatttekjur ríkisins. Samkvæmt tölum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, sem birtar eru í skýrslunni frá TENT, má búast við að kostnaðurinn við að taka á móti flóttafólki muni auka skuldir aðildarríkja Evrópusambandsins samtals um 68,8 milljarða evra á árabilinu 2015-2020. Hins vegar muni þjóðarframleiðsla aðildarríkjanna aukast samtals um 126,6 milljarða evra á sama tímabili. „Þannig mun hver evra, sem fjárfest er í aðstoð við flóttafólk, gefa af sér nærri tvær evrur í efnahagslegum ávinningi á innan við fimm árum,“ segir í skýrslunni. Þetta er viðbótarhagvöxtur upp á 0,25 prósent á þessum fimm árum. Aukningin verður mest í þeim löndum, sem tekið hafa við flestu flóttafólki, nefnilega Austurríki, Svíþjóð og Þýskalandi. Hagvaxtaraukningin þar gæti numið 0,5-1,1 prósenti. „Meginboðskapur þessarar rannsóknar,“ segir í skýrslunni, „er að bæði þeir sem móta stefnuna og þeir sem sjá um framkvæmdina ættu að hætta að líta á flóttafólk sem „byrði“ sem þurfi að skipta á milli sín, heldur frekar sem tækifæri sem beri að fagna.“ Höfundur skýrslunnar, Philippe Legrain, segir í viðtali við breska blaðið The Guardian að þessi misskilningur, að flóttafólk sé byrði á viðtökulöndunum, sé afar útbreiddur: „Og þetta er ranghugmynd sem meira að segja þeir eru haldnir, sem eru hlynntir því að taka við flóttafólki, og telja að flóttafólk kosti mikið fé en það sé samt rétt að taka við því.“ Auknar byrðar af völdum flóttafólks séu aðeins til skamms tíma, því til lengri tíma litið styrki það efnahag ríkjanna.Fréttin birtist í Fréttablaðinu 19. maí.
Mest lesið Vön því að hringja í fullorðna karlmenn á fölskum forsendum Innlent Játa frelsisviptingu og rán en hafna manndrápi Innlent Aldrei kynnst neinum sem harkaði jafnmikið af sér Innlent „Ég er fimmtíu kíló, ég get ekki stoppað hann“ Innlent „Hann var hræddur, eiginlega alveg skíthræddur“ Innlent „Tesla er ekki málið til að standa í svona“ Innlent Tilgangurinn að ná í „easy money“ Innlent Yfirmaður heraflans er á móti hernámi og vill semja Erlent Hækkar frítekjumark vegna hækkunar örorkulífeyris Innlent Minntust Jesse í Vesturbænum: „Það er mikill söknuður að virkilega góðum dreng“ Innlent Fleiri fréttir Vörpuðu sprengjum á sjúkrahús með 15 mínútna millibili Vilja nú senda El Salvador fangann til Úganda Habeck hættir á þingi Hótar að senda herinn til Baltimore El Mayo sagður ætla að játa sekt Tíunda skotið klikkaði Yfirmaður heraflans er á móti hernámi og vill semja Persónulegar og átakanlegar lýsingar í ævisögu Giuffre Þýska velferðarríkið standi ekki lengur undir sér Á sjöunda tug drepin í stórtækum árásum Ríkisstjóri Illinois sakar Trump um valdníðslu Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Sjá meira