Sveitarstjórnin gerð afturreka með nýjan strandblakvöll á Vopnafirði Garðar Örn Úlfarsson skrifar 28. desember 2016 06:45 Gerð strandblakvallar á Vopnafirði var stöðvuð og framkvæmdaleyfið síðan fellt úr gildi eftir kæru frá eigendum næstu húsa. Völlurinn er við enda skólalóðar grunnskólans.
Ákvörðun sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps um að gefa framkvæmdaleyfi fyrir strandblakvelli í þorpinu hefur verið felld úr gildi af úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Engin formleg umsókn lá fyrir vegna gerðar strandblakvallarins sem átti að vera á lóð Lónabrautar 4 heldur hafði áhugafólk rætt málið óformlega við sveitarstjórann. Þrátt fyrir athugasemdir nágranna var blakvöllurinn samþykktur og lögðu þá eigendur þriggja nærliggjandi húsa fram kæru „meðal annars vegna sandfoks, sem aldrei verði hægt að koma í veg fyrir, ónæðis vegna hávaða, sem þau þegar hafi reynslu af vegna nærliggjandi sparkvallar, og þess að sækja þurfi bolta í garða fólks lendi hann út af við annan enda vallarins,“ segir í umfjöllun úrskurðarnefndarinnar.Frá Íslandsmótinu í strandblaki sem nýtur vaxandi vinsælda hérlendis. Einhver bið verður á því að strandblaksvöllur mæti á Vopnafjörð.vísir/daníelÞá sögðu nágrannarnir að útsýni myndi skerðast mikið. „Ef byggður yrði skjólveggur eða girðing tæki það í burtu kvöldsólina sem íbúar neðan við njóti núna. Þar sem verið sé að byggja upp íþróttaaðstöðu með væntanlegu vallarhúsi annars staðar í bænum skilji kærendur ekki staðsetningu blakvallarins.“ Þá segja kærendurnir að það hafi fyrst verið eftir margar kvartanir og yfirlýst mótmæli á öllum stigum við bæði sveitarstjóra og oddvita sveitarstjórnar sem loks hafi verið fallist á grenndarkynningu. Þá hafi framkvæmdir verið komnar vel á veg. „Send hafi verið bréf til fimmtán aðila vegna kynningarinnar og níu þeirra sem hafi fengið bréf hafi mótmælt staðsetningunni harkalega,“ segir áfram í umfjölluninni. Í málsvörn Vopnafjarðarhrepps kemur fram a sandurinn í blakvellinum verði sambærilegur sandi sem notaður sé í slíka velli um allt land. „Hafi hann lítið fokgildi. Reynist þörf á að breiða yfir völlinn við ákveðnar aðstæður verði það gert til að hindra enn frekar að sandur berist frá vellinum.“ Varðandi hávaða bendir sveitarfélagið á lögreglusamþykkt Vopnafjarðarhrepps þar sem segi að lögregla geti vísað fólki, sem valdi vegfarendum eða íbúum í nágrenni ónæði, burtu af almannafæri. „Ekkert við framkvæmd vallarins muni hafa áhrif á útsýni frá húsum á svæðinu,“ er vitnað til raka Vopnafjarðarhrepps. Úrskurðarnefndin segir að Vopnafjarðarhreppur hafi hvorki fullnægt kröfum skipulagslaga né kröfum reglugerðar um framkvæmdaleyfi. „Var undirbúningi hins kærða framkvæmdaleyfis verulega áfátt og voru skilyrði ekki til staðar fyrir veitingu þess.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Sjá meira