Fyrrverandi leiðtogi sænskra Jafnaðarmanna næsti sendiherra Svíþjóðar hér á landi Atli Ísleifsson skrifar 28. desember 2016 08:22 Håkan Juholt sat á þingi fyrir hönd sænskra Jafnaðarmanna frá 1994 til 2016 og var formaður frá mars 2011 til janúar 2012. Vísir/AFP
Fyrrverandi formaður sænska Jafnaðarmannaflokksins, Håkan Juholt, verður næsti sendiherra Svíþjóðar hér á landi. Expressen greindi frá þessu í gærkvöldi. „Ég hætti á þingi þann 11. september 2016 og hef verið að sækja um nokkur störf síðan. Eftir 22 ár á sænska þinginu vildi ég taka næsta skref og vinna að einhverju öðru,“ segir Juholt. Sænska utanríkisráðuneytið hefur lagt til að Juholt taki við embættinu, en búist er við að sænska ríkisstjórnin taki málið fyrir og staðfesti í næsta mánuði. „Ég er með mikla reynslu og vonast auðvitað til þess að að geta lagt eitthvað af mörkum. Ég vil gjarnan gera eitthvað meira og vonast til þess að einhver hafi trú á að ég geti gert það,“ segir Juholt. Aðspurður um ástæður þess að hann hafi sóst eftir að taka við sendiherrastöðu á Íslandi segir hann að sú staða losni á næsta ári. „Svo er Ísland land með sterka menningarvitund.“ Juholt sat á sænska þinginu fyrir hönd sænskra Jafnaðarmanna frá 1994 til 2016 og var formaður frá mars 2011 til janúar 2012. Juholt tók við formennsku í flokknum af Monu Sahlin, en Juholt sagði af sér eftir að sænskir fjölmiðlar greindu frá því að hann hafi þegið of háar upphæðir í styrk vegna íbúðar sem hann deildi með sambýliskonu sinni. Hann endurgreiddi upphæðina og sagðist hafa þegið upphæðina í góðri trú. Málið skaðaði hins vegar flokkinn og sagði hann af sér í ársbyrjun 2012. Stefan Löfven, núverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, tók þá við formannsembættinu I flokknum. Bosse Hedberg gegnir stöðu sendiherra Svíþjóðar hér á landi um þessar mundir.
Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Erlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Innlent Alelda bíll í Kópavogi Innlent Báðir aðstoðarmennirnir horfnir á stuttum tíma Innlent Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Innlent Fleiri fréttir Drengirnir hafi látið vita af sér Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Með lambúshettu að prófa sírenur og gjallarhorn Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Alelda bíll í Kópavogi Grunaður barnaníðingur gengur laus Varanlega sviptur vörslu á hundum sem hann skildi eftir í sóðaskap Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Dularfullt drónaflug í Kópavogi vekur íbúum ugg Gæti þaggað niður í röddum landsbyggðarinnar Báðir aðstoðarmennirnir horfnir á stuttum tíma Tvö mál í dag þar sem ógnað var með hnífi Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Sunnlendingar buðu best í breikkun á Kjalarnesi Stefna á að aflýsa öllum flugferðum Fagnar uppreisninni Tekjur Bílastæðasjóðs 258 milljónum yfir áætlun með hjálp skannbílsins Ráða nýjan forstjóra þvert á ósk framkvæmdastjóra Fimm aukaíbúðir þar sem aðeins mátti vera ein Kannast ekkert við málið og segir lögreglu hafa komið fíkniefnum fyrir Blindfullum unglingum fækkar Blendnar tilfinningar á Degi íslenskrar náttúru Margir telji húsnæði brottfararstöðvar of nærri íbúabyggð Sævar las upp yfirlýsingu: „Ég treysti ákæruvaldinu ekki“ Höfnuðu ráðgjöf um að göng undir Klettsháls yrðu í forgangi Sjá meira