Flugeldasalinn Örn Árnason lætur 200 kr af hverri seldri köku renna til Ljóssins Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar 28. desember 2016 13:27 Örn Árnason rekur, ásamt fleirum, flugeldasöluna Bombu
Nú fara flugeldasölurnar á fullt í dag og margt virðist vera í boði. Einkaaðilar hafa látið til sín taka í sölunni líkt og Vísir hefur greint frá. Einn þeirra er bomba.is en þjóðþekkti leikarinn Örn Árnason er einn rekstraraðila þar. Þeir settu sig í samband við Ljósið endurhæfingar-og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsveika og ætla að láta gott af sér leiða. „Við sem stöndum að Bombu höfum verið að styrkja ýmis konar starfsemi á borð við Fjölskylduhjálpina og við höfum ekki verið að láta það uppi hvað það hefur verið fyrr en núna.“ segir Örn og nefnir að Ljósið sé að vinna svo gott starf og því vilji þeir beina styrknum þangað. Örn nefnir að þeir hafi einnig stutt við einstaklinga sem hafi átt erfitt og hafi jafnvel lent í slysum. Hann bætir við að það fari 200 kr af hverri seldri tertu beint til þeirra og þeir muni einnig bæta við upphæðina. Þannig má sjá að af dýrustu tertunni sem kostar 59.900 kr renna 0,3 prósent til Ljóssins en 2 prósent renna til Ljóssins af ódýrustu kökunni sem kostar 9.900 kr.Verða fyrir smá mótlæti Aðspurður um stöðu einkaaðila á flugeldamarkaðnum og mótlætið sem á þá herjar m.a. frá stuðningsaðilum björgunarsveitanna segir Örn það ekkert launungarmál að hann telji að björgunarsveitir eigi að vera ríkisreknar. „Ég hef aldrei farið dult með þá skoðun mína að mér finnst, í svona harðbýlu landi sérstaklega á veturnar, að það eigi að vera til björgunarsveit sem á að vera ríkisrekin að hluta eða að stórum hluta. Mér finnst björgunarsveitir ekki endilega rétti aðilinn til að selja vörur sem geta valdið tjóni.“ Örn segir að þeir hjá Bombu hafi vissulega orðið fyrir smá mótlæti en bendir á að þetta sé lýðræðisríki og frjáls samkeppni á þessum markaði. Þeir vilji gera vel og styrkja gott málefni í leiðinni.Þakklát fyrir stuðninginn Erna Magnúsdóttir, forstöðumaður Ljóssins, segir þetta hafa komið sér vel og eru þau þakklát fyrir þessa styrki. „Hann hringdi og spurði hvort hann mætti styrkja Ljósið í ár og við sögðum já því við vitum að hann er hvort sem er að selja þetta og hann vildi láta gott af sér leiða og við þáðum það.“ Erna leggur samt sem áður áherslu á að þau vilji ekki með þessu skyggja á björgunarsveitirnar þar sem mikilvægt starf fari þar fram en þar sem einkaaðilar séu komnir á markaðinn þá liggi beint við að þiggja aðstoðina fyrst þeir vilji láta gott af sér leiða. Hún nefnir að það sé ekkert formlegt samstarf á milli en þau hafi skiljanlega þegið boðið. „Þetta var bara fallega hugsað hjá honum,“ bætir Erna við.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Sjá meira