Áður heilbrigðir eru greindir geðsjúkir Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar 14. júní 2016 07:00 Allen Frances deilir á ofnotkun greininga sem hann segir þjóna lyfjaiðnaði. vísir/anton
Allen Frances er gagnrýninn á greiningakerfi geðlæknisfræðinnar. Hann telur lyf gegna of veigamiklu hlutverki í meðferð.vísir/anton „Aldous Huxley spáði fyrir þessari þróun fyrir mörgum árum þegar hann sagði: Framþróun nútíma læknisfræði er svo undraverð að brátt verður ekkert okkar heilbrigt,“ segir Allen Frances. Þekktur bandarískur geðlæknir, fyrirlesari og höfundur bókarinnar Saving Normal. Hann er hér til að flytja fyrirlestur á málþingi Geðhjálpar; Hefur okkur borið af leið…? á Grand Hóteli á morgun, 15. júní. Þar fjallar Frances um ofgreiningar, yfir- og undirþjónustu og ofneyslu lyfja. Hann er þekktastur fyrir að tala opinberlega gegn of ítarlegum greiningum sem hann segir þjóna lyfjaiðnaði frekar en fólki. Hann segir marga sem áður voru álitnir heilbrigðir greinda með geðsjúkdóma, þjáning hversdagsins verið gerð að geðröskunum og allt of oft meðhöndluð með lyfjum. „Áttatíu prósent geðlyfja eru uppáskrifuð af heimilislækni sem hefur hvorki þjálfun né tíma til að kynnast sjúklingnum og er líka undir þrýstingi lyfjafyrirtækja,“ segir Allen Frances. Helst séu það börn og konur sem séu ofmeðhöndluð.Skortur á viðtalsmeðferð Þórgunnur Ársælsdóttir geðlæknir er einn geðlækna sem tekur þátt í málþinginu og segir skort á aðgengi viðtalsmeðferð. „Áhersla á lyfjameðferð hefur verið of mikil hér á landi. Ein af ástæðunum fyrir því er tvímælalaust slakt aðgengi að viðtalsmeðferð í grunnheilbrigðisþjónustunni,“ segir Þórgunnur og segir viðhorf fólks til vanlíðunar einnig skipta máli. „Það getur líka skýrst af þrýstingi á að laga hlutina fljótt, og óþoli gagnvart vanlíðan og þjáningu. Það gleymist stundum í umræðunni að það að finna til og þjást er eðlilegur hluti af því að vera manneskja.“Sorg er ekki þunglyndi Þórgunnur tekur undir með Allen og nefnir dæmi um vanlíðan og þjáningu sem líkist geðsjúkdómum og röskunum en eru það ekki. „Sorg í kjölfar ástvinamissis getur til dæmis líkst þunglyndi, en er það þó ekki, heldur eðlileg viðbrögð við missi. Það að vera utan við sig og gleyminn, einbeitingarlaus og fljótfær, þarf ekki að þýða að maður hafi athyglisbrest,“ segir Þórgunnur og segir fræði Allen áhugaverð og vekja upp þarfa umræðu. „Það voru gríðarlegar framfarir í meðferð geðsjúkra á síðustu öld og einn veigamesti liðurinn var framþróun í lyfjameðferð. Lyf geta verið gríðarlega mikilvæg í alvarlegum veikindum og geta verið hjálpleg í leið til bata,“ segir Þórgunnur.Auðna Ýr Oddsdóttir hefur náð að fóta sig en læknir hennar fer eftir kenningu um valdeflingu. Hlustað er á hennar þarfir.vísir/antonAldrei neydd til neins Auðna Ýrr Oddsdóttir veiktist í kjölfar kannabisneyslu á unglingsárum. Batasaga hennar er gott dæmi um það hversu margir þættir aðrir en lyf stuðla að bata. Eftir neysluna missti hún tökin á námi sínu og einangraðist félagslega. Hún fékk einnig svokölluð síðhvörf, ofskynjanir og mikil óþægindi. Auðna fann fyrir markverðum árangri eftir að farið var að vinna eftir kenningum valdeflingar í meðferð hennar. „Ég var aldrei neydd til neins og kenning um valdeflingu er nokkuð sem læknirinn minn hefur fylgst með. Það er komið til móts við fólk með geðsjúkdóma. Ég treysti ráðum læknisins, fékk ráðgjöf hjá félagsráðgjafa menntuðum í fjölskyldutengslum, fór í iðjuþjálfun og fór að huga að námi en á mínum eigin hraða,“ segir Auðna frá. Hún gerði margt fleira til að vinna í bata, breytti um mataræði, jók við hreyfingu og bætir sífellt við sig í vinnu. „Allt þetta, uppbyggingin, fæðið og hreyfingin hefur góð áhrif,“ segir Auðna sem er komin í 90 prósenta starf. „Ég var að finna á heimili fyrir fatlaða en er að skipta yfir í geðgeirann, mér finnst góð tilhugsun að gefa af mér til baka,“ segir hún. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 13. júní.
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira