Innlent

Dorg og skrímslarusl eru meðal hugmynda

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Fólk er hvatt til að sleppa ímyndunaraflinu lausu eins og sést á kynningarmynd verkefnisins þar sem sjá má rússibana á Klambratúni.
Fólk er hvatt til að sleppa ímyndunaraflinu lausu eins og sést á kynningarmynd verkefnisins þar sem sjá má rússibana á Klambratúni. Mynd/reykjavíkurborg
Hugmyndasöfnun á Betri Reykjavík vegna nýframkvæmda og viðhaldsverkefna lýkur á morgun.Rúmlega fimm hundruð hugmyndir hafa skilað sér inn á vefinn og yfir 18 þúsund Reykvíkingar skoðað þær á vefnum.

Eftir að hugmynd hefur verið sett inn er hægt að deila henni á samfélagsmiðlana og vekja athygli á henni. Þannig getur skapast stemning um hugmyndir og aðrir geta sett inn rök með eða á móti hugmynd. Þessi nýbreytni hefur aukið áhuga borgarbúa á verkefninu.

Á morgun verður lokað fyrir möguleikann á að senda inn hugmyndir og byrjað að vinna úr þeim sem komnar eru.

Sonja Wiium verkefnastjóri segir fagteymi meta hugmyndirnar, hverjar séu innan fjárhagsramma og framkvæmanlegar, og svo velja um fimmtíu fyrir hvert hverfi. Þar á eftir stillir hverfisráðið upp tuttugu hugmyndum sem borgarbúar kjósa um fyrstu vikuna í nóvember.

„Hverfisráðið tekur tillit til vinsælda, hversu mörgum hefur líkað við hugmyndina og einnig er reynt að dreifa hugmyndunum um hverfið.“

Framkvæmt verður fyrir 450 milljónir króna og skiptist fjárhæðin milli hverfa. Dreifingin byggir að hluta til á íbúafjölda.

„Upphæðin hefur verið 300 milljónir undanfarin ár en hún hækkaði í ár. Það var kominn tími til að mæta verðlagsbreytingum,“ segir Sonja en fjárhæðin sem hvert hverfi fær er frá þrettán milljónum, í Kjalarnesi, til tæplega sjötíu milljóna í Breiðholti.

Fjölbreyttar hugmyndir

Algengast er að hugmyndir snúi að bættum leikvöllum, nýjum gönguleiðum eða umferðaröryggi. En einnig er að finna ævintýralegar og frumlegar hugmyndir:

  • Ævintýra- og þrautagarður í Bakkahverfi 
  • Bryggja eða tangi fyrir dorgveiðimenn í Laugarnesi 
  • Ljóð sem birtast á Ægisíðunni í rigningu 
  • Skrímslaruslatunnur í Breiðholti l Sundlaug í Fossvoginum
  • Heit fótalaug í Laugardalnum l Rennibraut í Ártúnsbrekku
  • Yfirbyggður leikvöllur með gleri
  • Broskallar í umferðarljós
Hugmyndin þarf að:

  • Nýtast hverfinu í heild.
  • Ekki kosta meira en er í framkvæmdapotti hverfisins.
  • Má ekki krefjast mjög flókins undirbúnings og framkvæmdar.
  • Verður að falla að skipulagi borgarinnar og stefnu, vera í verkahring borgarinnar og á borgarland



Fleiri fréttir

Sjá meira


×