Voru fastir úti á rúmsjó í rúma tvo sólarhringa Nadine Guðrún Yaghi skrifar 14. júní 2016 07:00 Aðfaranótt laugardags festist net í skrúfu skipsins þegar það var statt í um 220 sjómílur vestur af Írlandi. Mynd/Skipaþjónusta Íslands „
Þeir urðu fyrir því óhappi að sigla inn í svokallað drauganet sem festist í skrúfunni og skipið varð stopp úti á hafi,“ segir Ægir Arnar Valgeirsson, framkvæmdarstjóri Skipaþjónustu Íslands. Sex manna áhöfn Skipaþjónustunnar hefur setið föst úti á hafi í tvo og hálfan sólarhring á skipinu Togaranum. Skipið var keypt af Skipaþjónustu Íslands frá Spáni og var áhöfn send til að sækja það í byrjun júní. Fram kemur á vef Skipaþjónustunnar að Togarinn sé dráttarbátur, 33,5 metrar að lengd og 8,8 metra breiður, smíðaður í Hull árið 1977, en endurnýjuð í honum vélin 1998. Um er að ræða eitthvert öflugasta togskip sem hér verður við störf, en skipið er sagt með 48 tonna togkraft. Togarinn lagði af stað til Íslands í byrjun júní. Aðfaranótt laugardags festist net í skrúfu skipsins þegar það var statt í um 220 sjómílur vestur af Írlandi. „Þetta gerist úti á miðju hafi um nóttina á föstudaginn og það var strax sett saman björgunarteymi. Þetta tekur auðvitað tíma og það tók yfir sólarhring bara að sigla út til að ná í þá. Svo átti eftir að draga skipið í land aftur,” segir Ægir en áhöfnin er loks væntanleg í land í dag. „Sem betur fer var gott veður og allir eru í góðum málum. Það ræður auðvitað enginn við þetta og það geta allir lent í þessu miðað við allt ruslið í sjónum. Þeir voru vel búnir og með allt til alls enda leggur enginn af stað öðruvísi.“ Ægir segir ferðina frá Spáni til Íslands hafa verið áætlaða átta daga og að áhöfnin sé spennt að komast heim. „Ef allt hefði gengið upp hefðu þeir komið til Íslands síðastliðinn sunnudag. Í dag verður athugað með skrúfuna og hún löguð ef þess þarf. Þá verður farið yfir búnaðinn. Ef allt gengur upp leggja þeir af stað heim í dag eða á morgun,” segir Ægir Arnar Valgeirsson.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 13. júní.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira