Í hjónaband á gamlársdag: Gifta sig á afmælisdegi Sir Alex og brúðgumans Elín Albertsdóttir skrifar 30. desember 2016 10:00 Það var á Old Trafford á leik Manchester United á móti Blackburn Rovers sem þau Ágústa og Hermann innsigluðu sambandið um áramótin 2011-2012.
Ágústa Gunnarsdóttir og Hermann Úlfarsson ganga í heilagt hjónaband í Dómkirkjunni kl. 14 á morgun, gamlársdag. Séra Hjálmar Jónsson gefur þau saman og síðan verður fagnað allt þar til nýtt ár gengur í garð. Brúðhjónin hlakka mikið til og undirbúningur hefur staðið sem hæst. Gamlársdagur er mikill hátíðardagur. Að gifta sig á þeim degi gerir daginn enn hátíðlegri og trúlega verður aldrei hægt að gleyma brúðkaupsafmælum. Það er ekki að ástæðulausu sem Ágústa og Hermann völdu þennan dag. „Við fórum í okkar fyrstu ferð saman til útlanda um áramót. Það var á Old Trafford á leik Manchester United á móti Blackburn Rovers. Þá vorum við búin að þekkjast í nokkra mánuði. Í þessari ferð innsigluðum við sambandið. Þetta var um áramótin 2011-2012,“ segir Ágústa þegar hún er spurð um daginn. „Í ferðinni kynntumst við mörgum Englendingum og okkur var óvænt boðið í mat með nokkrum þeirra á hótelinu þar sem við bjuggum. En það er efni í annað viðtal,“ segir Ágústa og hlær. Ágústa segist hafa boðið kærastanum í ferðina en hún starfaði á þeim tíma sem flugfreyja hjá Iceland Express. „Ástæðan var bæði einlæg aðdáun hans á Manchester United og svo á hann afmæli á gamlársdag. Þessi dagur er líka afmælisdagur Alex Ferguson, fyrrverandi knattspyrnustjóra liðsins. Dagurinn er því stór hjá okkur,“ upplýsir Ágústa og bætir við að eftir að hún kynntist Hermanni var ekki um að ræða að hún héldi með Liverpool.Rómantískt bónorð Þegar Ágústa er beðin að lýsa bónorðinu segir hún að þau hafi lengi verið ákveðin í að giftast. „Ekki trúlofast heldur ganga í heilagt hjónaband. Bónorðið kom síðastliðið vor þegar hann gaf mér gullfallegt Swarowski-armband. Við settum aldrei upp trúlofunarhringa þar sem okkur fannst það ekki skipta máli. Þetta var mjög rómantísk stund sem maður á aldrei eftir að gleyma,“ segir hún. „Okkur langaði síðan til að hafa þetta einfalt brúðkaup með nánustu fjölskyldu.“ Hermann hefur aldrei verið kvæntur en á tvö börn frá fyrra sambandi. Ágústa var gift og á eina dóttur. Á þeim tíma gifti hún sig hjá borgardómara. Þetta er því kirkjubrúðkaup hjá báðum í fyrsta skipti. Hún ætlar að vera í hvítum brúðarkjól og ganga alla leið í að gera daginn ógleymanlegan. „Við erum með þrjár brúðarmeyjar sem eru orðnar spenntar,“ bætir hún við en Ágústa og Hermann eiga eitt barn saman sem er á fjórða ári. Ágústa leggur það meira að segja á sig að fara í hárgreiðslu klukkan átta í fyrramálið.Ágústa og Hermann ganga í það heilaga á morgun og bjóða síðan í indverska veislu.Indversk veisla „Hermann á aldrei eftir að gleyma brúðkaupsafmælinu því þá myndi hann líka gleyma eigin afmæli,“ segir Ágústa glettin. „Ég á stóra fjölskyldu og hans fjölskylda kemur frá Ólafsvík, þaðan sem hann á ættir að rekja. Með börnum okkar verða um sextíu manns í veislunni. Við erum mjög þakklát fyrir að fólk gefi sér tíma á þessum degi til að fagna með okkur. Margir eru fastheldnir á hefðir á gamlársdag. Þetta verður falleg athöfn í Dómkirkjunni og síðan verður gestum boðið til veislu í litlum sal í Kópavogi. Við bjóðum upp á níu indverska rétti frá veitingastaðnum Bombey Bazaar og þriggja hæða brúðartertu frá Sætum syndum. Þetta verður ekki mannmörg veisla en mjög grand fyrir þá sem mæta. Ástæða þess að við veljum indverskan mat er sú að góðir vinir okkar reka staðinn og við treystum þeim hundrað prósent fyrir veislunni. Maturinn er svo ofboðslega góður og allir örugglega búnir að fá leið á reyktum mat,“ segir Ágústa. „Við förum svo heim til okkar eftir veisluna með nokkrum gestum og höldum áfram að fagna. Við fögnum nýju ári og einnig afmæli tengdamóður minnar sem á afmæli 1. janúar.“ Haldið verður í hefðirnar því Ágústa ætlar að gista hjá foreldrum sínum í nótt svo væntanlegur eiginmaður fær ekki að sjá hana fyrr en í kirkjunni. „Það er auðvitað svolítið stress í loftinu en jafnframt tilhlökkun,“ segir hún.Brúðkaup og jarðarfarir Þegar hún er spurð um brúðkaupsferð segir Ágústa að þau ætli að gera sér dagamun um næstu helgi og dvelja á Hótel Selfossi. Brúðkaupsferð til útlanda þarf aðeins að bíða. „Við getum því látið okkur hlakka til brúðkaupsferðar þegar þetta er allt afstaðið núna.“ Dómkirkjan hefur mikið komið við sögu í föðurfjölskyldu Ágústu enda fædd í Reykjavík og alin upp í Grindavík. Saman búa þau Hermann núna í Kópavogi. „Undanfarið hefur maður helst mætt í Dómkirkjuna í jarðarfarir en mig langaði til að fjölskyldan gæti glaðst saman í kirkjunni að þessu sinni. Við hlökkum mikið til, presturinn, séra Hjálmar, er alveg einstakur og mjög skemmtilegur. Einnig verður boðið upp á fallegan söng. Í framtíðinni getum við horft á flugelda og fagnað brúðkaupsafmælum. Það er alltaf gleði á gamlársdegi.“
Mest lesið Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Lífið Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Lífið „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Lífið Ellen verður að Dóru á ný Lífið Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás Lífið Þakklát að þurfa ekki að hafa teppi á klósettinu Menning Tala dýrsins 666 og Neró keisari Lífið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ Lífið Fleiri fréttir Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sjá meira