Brunavarnir á Kumbaravogi í ólestri og úrbótum ekki sinnt Þorgeir Helgason skrifar 31. desember 2016 07:00 „
Ég hef ekkert um þetta mál að segja ennþá,“ segir Guðni Kristjánsson, framkvæmdastjóri dvalar- og hjúkrunarheimilisins Kumbaravogs á Stokkseyri. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra ákvað í fyrradag að loka hjúkrunarheimilinu í samræmi við tillögu Embættis landlæknis. Í tilkynningu um lokun hjúkrunarheimilisins frá heilbrigðisráðherra segir að Embætti landlæknis telji fullreynt að knýja fram úrbætur. Öryggi sjúklinga sé stefnt í hættu. „Ástandið hefur lítið batnað frá því að við gerðum úttektina árið 2012. Rekstraraðilinn hefur borið fyrir sig við okkur að hann hafi ekki fengið nægilegt fjármagn til þess að bæta úr aðstöðunni,“ segir Anna Björg Aradóttir, sviðsstjóri hjá Embætti landlæknis. Þrisvar á síðustu árum hefur landlæknir gert úttekt á hjúkrunarheimilinu og gert alvarlegar athugasemdir sem snúa helst að aðbúnaði íbúa heimilisins, mönnun og fleira sem uppfyllir ekki kröfur embættisins um þjónustu hjúkrunarheimila. Samkvæmt úttekt í fyrra er hlutfall faglærðra starfsmanna á Kumbaravogi við hjúkrun og umönnun aðeins 39,1 prósent. Landlæknir miðar hins vegar við að hlutfallið eigi að vera 77,87 prósent og að lágmarki 57,14 prósent til að tryggja öryggi þjónustunnar. Töluverðar athugasemdir voru gerðar við húsnæði heimilisins í úttektinni 2012 en lítið sem ekkert var gert í þeim málum þrátt fyrir margítrekaðar ábendingar frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands. Viðhaldi húsnæðisins hafi ekki verið sinnt, það rigni og blási inn um óþétta glugga og íbúar hafi kvartað töluvert yfir kulda í húsnæðinu vegna þess að margir ofnar í húsinu séu bilaðir og ekki sé hirt um að lagfæra þá eða endurnýja. Þá hangi pípu- og raflagnir niður úr loftum, húsgögn og innréttingar séu úr sér gengin, flest rúm íbúanna séu yfir þrjátíu ára gömul og rúmfatnaður hafi ekki verið endurnýjaður í mög ár. Einnig kemur fram að lítið hafi verið unnið í gæða- og öryggismálum, meðal annars brunavörnum, frá því að úttektin frá árinu 2012 var unnin. „Ef til þess kemur að rýma þarf húsið þá er illmögulegt að koma rúmum út um þær einu dyr sem eru nógu stórar, bæði er að hurð er biluð og ekki hægt að opna með góðu móti, auk þess sem það er nokkuð hár stallur niður á jörðina fyrir utan,“ segir í úttektinni. Íbúar á Kumbaravogi eru 29 talsins og unnið er í samráði við þá og aðstandendur þeirra að því að finna þeim ný og viðunandi búsetuúrræði. Áætlað er að síðustu íbúar Kumbaravogs flytji þaðan eigi síðar en 31. mars næstkomandi.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Sjá meira