Daginn tekur að lengja á ný Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. desember 2016 10:26 Vetrarsólstöður eru í dag svo eftir morgundaginn tekur daginn að lengja á ný. vísir/vilhelm
Vetrarsólstöður eru klukkan 10:44 í dag á norðurhveli jarðar sem þýðir að eftir morgundaginn tekur daginn að lengja. Samkvæmt vef veðurstofunnar rís sólin klukkan 11:22 í Reykjavík, hádegi verður klukkan 13:26 og sólin sest svo klukkan 15:31. Sólarinnar nýtur því við aðeins í rúma fjóra tíma í dag í Reykjavík en aðeins í tæpa þrjá tíma á Akureyri þar sem það er mismunandi eftir því hvar maður er á landinu hversu lengi sólin er á loftinu. „Þetta gerist tiltölulega hægt. Fyrst lengist dagurinn um nokkrar sekúndur og síðan um nokkrar mínútur þannig að fólk tekur ekki alveg eftir muninum strax. Á gamlársdag verður sólargangstíminn til að mynda orðinn þremur mínútum lengri en svo strax í janúar ætti fólk að vera farið að taka eftir því að dagurinn er orðinn lengri,“ segir Sævar Helgi Bragason, ritstjóri Stjörnufræðivefsins í samtali við Vísi. Ástæðan fyrir þessu er möndulhalli jarðar og sporöskjulaga braut Jarðar um sólina en þetta veldur því að sólin færist mishratt yfir himininn, að því er segir í færslu á Facebook-síðu Stjörnufræðivefsins. „Jörðin er ekki upprétt í geimnum heldur hallar hún pínulítið, svona eins og skopparakringla og fyrir vikið þá hallar hvelunum sínum að og frá sólinni til skiptis þannig að núna þegar við fögnum vetrarsólstöðum þá eru sumarsólstöður á suðurhveli jarðar og fólkið fagnar þar því,“ segir Sævar. Við vetrarsólstöður er Jörðin nálægt því að vera næst sólinni en þá ferðast hún örlítið hraðar um sólina en í lok júní, við sumarsólstöður, þegar Jörðin er fjærst sólu.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir Slökkvilið í útkalli á Hringbraut Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Sjá meira