Ganga í minningu þeirra sem sviptu sig lífi Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 21. desember 2016 14:28 Pieta Ísland sjálfsvígsfornvarnarsamtök standa fyrir Vetrarsólstöðugöngu á miðnætti í kvöld. Eliza Reid forsetafrú er verndari samtakanna. Vísir/Stefán/Saga Sig
Pieta Ísland sjálfsvígsfornvarnarsamtök standa fyrir Vetrarsólstöðugöngu á miðnætti í kvöld. Komið verður saman í húsnæði Kynnisferða klukkan 23 þar sem boðið verður upp á veitingar og stutta dagskrá. Frú Eliza Reid, verndari samtakanna, mun flytja ávarp og Högni Egilsson og Ellen Kristjánsdóttir munu flytja ljúfa tóna ásamt dætrum Ellenar. Á miðnætti verður gengin blysför út að Vitanum við Skarfagarð þar sem aðstandendum gefst tækifæri til að rita nöfn ástvina og kveðjur á vegg Vitans. Nöfnin munu standa á vitanum yfir jól og áramót til minningar og sem tákn um von og samstöðu með þeim sem lifa með þunglyndi. Sjálfsvíg og sjálfsskaði eru stór vandamál á Íslandi en árlega reyna 5-600 manns að taka eigið líf og 30-50 deyja af völdum sjálfsvíga. Pieta Ísland voru stofnuð í upphafi ársins og starfa að írskri fyrirmynd, PietaHouse. Í vor stóðu samtökin fyrir fyrstu göngu sinnar tegundar á Íslandi þar sem 300 manns komu saman í Laugardalnum aðfararnótt 7. Maí og gengu saman fimm kílómetra til móts við sólarupprásina. Á sama tíma gengur 120 þúsund manns í fjórum heimsálfum á vegum PietaHouse, til minningar um þá sem hafa tekið eigið líf. Samtökin munu á næsta ári opna nýtt úrræði í sjálfsskaða- og sjálfsvígsforvörnum, fyrir einstaklinga í vanda og aðstandendur þeirra. Hafin er formleg söfnun á meðal almennings fyrir Pietahúsi sem mun hýsa starfsemina og bjóða ókeypis þjónustu og eftirfylgd í samstarfi við þá þjónustu sem er fyrir hérlendis. Jafnframt verður staðið að forvarnarfræðslu og eftirfylgd í kjölfar áfalla.
Tengdar fréttir 300 manns gengu úr myrkrinu í ljósið Minntust ástvina sinna. 7. maí 2016 20:35 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Sjá meira