Minnihlutinn í borginni gagnrýnir vinnubrögð vegna ráðningu borgarritara Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 22. desember 2016 15:28 Kjartan Magnússon borgarfulltrúi. vísir/vilhelm
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar og flugvallarvina gera alvarlega athugasemd við vinnubrögð borgarstjóra og meirihluta borgarráðs vegna ráðningar Stefáns Eiríkssonar sem borgarritara. Meirihluti borgarráðs ákvað á fundi sínum í dag að ráða Stefán í stöðuna en fulltrúar minnihlutans sátu hjá við afgreiðslu málsins. Þau segja það vera vegna óviðunandi vinnubragða borgarstjóra og fulltrúa meirihlutans í málinu. Í tilkynningu frá minnihlutanum segir að við slíka ráðningu hljóti að vera hægt að gera kröfu um vönduð vinnubrögð enda sé um að ræða eitt mikilvægasta og valdamesta embætti í borgarkerfinu. Borgarritari er einn staðgengill borgarstjóra. „Í raun er um stjórnsýslulegt hneyksli að ræða því gengið er út frá því að fulltrúum í fjölskipuðu stjórnvaldi sé gefinn kostur á að kynna sér gögn málsins áður en ákvörðun er tekin en svo var alls ekki í þessu tilviki. Borgarstjóri virðist líta svo á að borgarráð gegni því hlutverki að stimpla ákvarðanir sem hann hefur þegar tekið.“ segir í tilkynningu. Þau segja ráðningu Stefáns ekki hafa verið á útsendri dagskrá fundarins og að borgarráðsmenn minnihlutans hafi ekki fengið nein gögn send vegna þess fyrir fundinn. „Á miðjum fundi fengu fulltrúar minnihlutans loks eitt eintak afhent af tillögu borgarstjóra í málinu með þeim skilaboðum að hún yrði afgreidd í lok fundar. Tillagan er fimm blaðsíður að lengd og virðist borgarstjóri hafa ætlast til þess að fulltrúar minnihlutans læsu hana samhliða öðrum málarekstri á fundinum.” Ekki var orðið við ósk fulltrúa minnihlutans um frestun málsins til næsta fundar til að þau gætu þannig kynnt sér gögn málsins áður en ákvörðun yrði tekin. „Slík vinnubrögð eru algerlega óviðunandi og ganga í berhögg við reglur stjórnsýsluréttar. Slík vinnubrögð eru því miður ekki einsdæmi hjá Reykjavíkurborg undir stjórn meirihluta Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar, Pírata og Vinstri grænna.”
Tengdar fréttir Stefán Eiríksson ráðinn borgarritari Stefán hefur frá 1. september 2014 starfað sem sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkur. 22. desember 2016 14:01 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Sjá meira
Stefán Eiríksson ráðinn borgarritari Stefán hefur frá 1. september 2014 starfað sem sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkur. 22. desember 2016 14:01