Friðargangan fjölmennari en nokkru sinni fyrr nína hjördís þorkelsdóttir skrifar 23. desember 2016 22:14
Friðargangan fór fram í miðborg Reykjavíkur fyrr í kvöld en gangan er áminning um afleiðingar styrjalda. Friðargangan hefur verið gengin á þessum degi í 37 ár. Gangan hófst á Hlemmi og lauk á Austurvelli. Ingibjörg Haraldsdóttir, einn af skipuleggjendum göngunnar, sagði í samtali við Stöð 2 að gangan væri yfirleitt fjölmennari þegar það er alvarlegt ástand í heiminum. „Þegar gangan var að byrja og verið var að berjast gegn kjarnorkuvopnum og síðan þegar Íraksstríðið geysaði, þá voru óvenju fjölmennar göngur.“ Ingibjörg telur að gangan í ár sé ef til vill sú fjölmennasta hingað til. „Íslendingar eru friðsamt fólk. Við viljum vinna gegn stríði og við viljum hjálpa þessu flóttafólki sem á í erfiðleikum í dag,“ sagði Ingibjörg. Mikill fjöldi í bænum Mikill fjöldi fólks er nú í miðborg Reykjavíkur enda flestar verslanir opnar talsvert langt fram eftir á Þorláksmessu. Að sama skapi hefur verið talsverður erill í verslunarmiðstöðvum í dag en verslanir í Kringlunni og Smáralind eru opnar til klukkan 23 í kvöld. Lokað hefur verið fyrir umferð á neðri hluta Laugavegs fyrir neðan Vatnsstíg. Að sama skapi er Skólavörðustígur lokaður neðan við Bergstaðastræti. Að sögn lögreglu er hefur umferð í borginni gengið klakklaust fyrir sig þrátt fyrir margmennið. Ekki hafa orðið nein alvarleg umferðaróhöpp í höfuðborginni það sem af er kvöldi.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Sjá meira