Erfið færð á landinu öllu: Þyrlan kölluð út Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 26. desember 2016 21:01 Af Hellisheiði í kvöld. Vísir/Henry Birgir
Erfið færð er á landinu öllu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Í kvöld gengur í hvassa suðaustanátt með slyddu eða rigningu á láglendi en snjókomu til fjalla, þar með talið eru Hellisheiði, Lyngdalsheiði og Mosfellsheiði. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á Hellisheiði í kvöld til þess að aðstoða sjúkraflutningamenn við að koma sjúklingi af heiðinni, en heiðin er ófær. Á heiðinni er bíll við bíl og gengur umferð hægt að sögn viðmælanda. Í tilkynningu Vegagerðarinnar segir að úrkomusvæði gangi til norðurs yfir Vesturland og Vestfirði með kvöldinu, en eftir miðnætti verður farið að rigna á öllu svæðinu. Það hvessir áfram í nótt og í fyrramálið má búast við suðaustan 18-25 m/s og snörpum vindhviðum víða bæði sunnanlands og vestan. Í tilkynningunni segir jafnframt að veður fari versnandi á Suðurlandi. Þæfingsfærð sé á Reynisfjalli og austur yfir Mýrdalssand. Víðast hvar sé hálka eða snjóþekja, þótt þæfingur sé á nokkrum vegum í uppsveitum og á útvegum. Þá segir einnig að vaxandi vindur sé nú á Vesturlandi og að Fróðárheiði sé lokuð vegna óveðurs. Kemur fram að víðast hvar á Vesturlandi sé hálka og sums staðar snjóþekja. Á Bröttubrekku, Heydal sé þæfingsfærð en þungfært á Laxárdalsheiði. Kemur fram að á Vestfjörðum sé hálka eða snjóþekja á flestum vegum og sums staðar snjóar. Sömuleiðis sé snjóþekja eða hálka bæði á Norður- og Austurlandi en Breiðdalsheiði og Öxi séu ófærar.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Sjá meira