Lífið

Rikki heldur áfram að hrekkja vinkonu móður sinnar: „Hvort ert þú graðari fyrir eða eftir hádegi?“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Klara varð alveg brjáluð.
Klara varð alveg brjáluð.
Útvarpsmaðurinn Ríkharð Óskar Guðnason, Rikki G var hrekktur af vinkonu móður sinnar þegar hann varð þrítugur. Þá fékk hann eitt stykki rjómatertu framan í sig þegar hann var sofandi.

Rikki lofaði henni þá að hefna sín vel. Fyrr á þessu ári gerði hann hana gráhærða með því að tengja hana saman við Pizzastaði.

Sjá einnig: Fullkominn símahrekkur: „Ég var ekki að hringja á neinn helvítis pizzastað“

Rikki er hvergi nærri hættur og aftur lendir vinkona mömmu hans í honum. Nú tíu mánuðum síðar þarf hún að taka þátt í könnun sem telst langt frá því að vera eðlileg. Hér að neðan má heyra nýjasta hrekk Rikka sem er nokkuð spaugilegur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×