Sprenging í ávísun svefnlyfja á börn hér á landi sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 18. nóvember 2016 21:00 Aukningin er margföld frá árinu 2008, mest hjá börnum á aldrinum 10-14 ára. vísir/getty
Sprenging hefur átt sér stað í ávísununum svefnlyfja á börn á aldrinum 0 til 14 ára undanfarin ár, að sögn landlæknis. Fjöldi ávísana á svefnlyf var hverfandi árin 2004 til 2007, en jókst til muna árin 2008 til 2015. Aukningin er margföld frá árinu 2008, mest hjá börnum á aldrinum 10-14 ára. Fleiri drengir en stúlkur fengu ávísað svefnlyfi, en á síðasta ári fengu 31 af hverjum 1000 drengjum á aldrinum 10-14 ára ávísað svefnlyfi að minnsta kosti einu sinni, og 19 af hverjum 1000 stúlkum. Þetta er margfalt meira en í öðrum Norðurlöndum. Í tilfelli drengjanna er þetta 84 prósent meira en í Noregi og 37 prósent meira en í Svíþjóð, og í tilfelli stúlknanna 83 prósent meira en í Noregi og 47 prósent meira en í Svíþjóð. Á vef landlæknis segir að þessi þróun hafi verið til skoðunar undanfarin ár, en mörg þeirra barna sem taka svefnlyf eru jafnframt að taka örvandi lyf við ADHD. Gerðar hafa verið athugasemdir við ávísanir lækna og óskað eftir að farið sé eftir klínískum leiðbeiningum. Áhrif langtímanotkunar svefnlyfja, sem innihalda melótónin, eru ekki þekkt. Telur landlæknir því að ekki eigi að ávísa melatóníni til langs tíma án þess að vandaðar rannsóknir liggi til grundvallar greiningu á svefnvanda barnsins og foreldrum þess gerð sé gerð grein fyrir þeirri óvissu sem ríki um öryggi lyfsins. Norska blaðið Aftenposten greindi nýlega frá því að notkun barna á svefnlyfjum þar í landi hafi tvöfaldast á síðustu 10 árum og að áhyggjur séu af þessari þróun þar í landi. Rannsókn á lyfjanotkun barna 0 til 17 ára í Noregi 2004-2014 sýndi að notkun barna á svefnlyfjum hefur vaxið á undanförnum árum.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Fleiri fréttir Slökkvilið í útkalli á Hringbraut Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Sjá meira