Klerkur tapaði meiðyrðamáli gegn mági barnsföður síns Jakob Bjarnar skrifar 11. október 2016 13:10 Ummælin voru sannleikanum samkvæm og verða því ekki dæmd dauð og ómerk.
Séra Hildur Björk Hörpudóttir kærði mág barnsföður síns, Sigurð Hjalta Magnússon, fyrir meiðyrði. Dómur var upp kveðinn í Héraðsdómi Reykjaness, af Söndru Baldvinsdóttur, á þá leið að ekki þættu næg efni til kærunnar. Bæði þurfa að borga málskostnað. Séra Hildur Björk fór fram á milljón í miskabætur auk vaxta en ummælin, sem féllu á Facebook í upphafi þessa árs, komu fram í kjölfar þess að greint var frá því að Hildur Björk hafi verið skipuð prestur í Reykholti. Meðal þess sem farið var fram á að væri dæmt dautt og ómerkt er: „Sorgardagur fyrir Þjóðkirkjuna.“ Og: „Þjóðkirkjan ætlar að vígja tálmanamóður til prests.“ Ummælin vísa til forræðisdeilu Séra Hildar Bjarkar við barnsföður sinn en í dómsorði segir að ekkert hafi komið fram í umræddum ummælum sem ekki væri sannleikanum samkvæmt. Og hver maður væri frjáls skoðana sinna. Í dómnum er forræðisdeilumálið reifað og vísað til mats sýslumannsins í Kópavogi þar sem fram kemur að Séra Hildur Björk hafi augljóslega tálmað umgengni barna við föður sinn. Þar var sérstaklega tekið fram að þær hömlur á samskipti barna og föður þeirra yrðu ekki taldar annað en brot á rétti barnanna til umgengni við föður sinn. „Þannig liggur fyrir að stefnandi hefur tálmað umgengni föður og barnanna og byggjast ummæli stefnanda um umgengnistálmanir á staðreyndum þar um. Þá fela ummæli hans um að skipun stefnanda í embætti prests væri sorgardagur, að það væri von stefnda að framganga hennar yrði á kristilegri og kærleiksríkari nótum og að hún hefði sjálf kastað rýrð á sig, í sér gildisdóm um stefnanda.“ Þá kemur jafnframt fram í dómi að Séra Hildur Björk Hörpudóttir hefur sjálf fjallað opinberlega um einkamálefni fjölskyldunnar, en hún kom frásögn sinni um meint ofbeldi föður barnanna á framfæri opinberlega.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Máttu tæma lónið Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Fleiri fréttir Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Sjá meira