Tóg flæktist í skrúfu báts við sjóeldiskví í Fossfirði Atli Ísleifsson skrifar 13. október 2016 11:56 Úr Arnarfirði á Vestfjörðum. Fossfjörður gengur til suðurs inn úr Arnarfirði. Fréttablaðið/JSE
Óhapp varð við sjóeldiskví Arnarlax í Fossfirði í gærkvædi þegar tóg úr kvíafestingu flæktist í skrúfu brunnbáts sem var að sækja lifandi fisk til að flytja í land. Varðskip Landhelgisgæslunnar var sent á vettvang vegna slyssins. Í tilkynningu frá Arnarlaxi kemur fram að kafarar hafi losað tógið frá bátnum í morgun sem hafi svo verið siglt fyrir eigin vélarafli til hafnar á Bíldudal. Að sögn skapaðist engin hætta á slysum á fólki né heldur hafi orðið tjón á tækjum eða búnaði. „Engin hætta skapaðist heldur á því að lax slyppi úr kvíum. Þar sem veður var afleitt og vitað var um veru varðskipsins Þórs í nálægri höfn var Landhelgisgæslan beðin um að senda skipið á vettvang í öryggisskyni. Vegna veðurs var ákveðið að fresta því að losa bátinn og færa til hafnar þar til í birtingu í morgun. Fyrir nóttina var gengið þannig frá hnútum að engin hætta væri á því að bátinn myndi reka í átt að kvíunum. Í morgun var veður orðið kyrrt og reyndist auðvelt að losa bátinn og sigla til hafnar. Var báturinn affermdur og framleiðslan í landi og önnur starfsemi komin í eðlilegt horf strax um tíuleytið. Ástæður óhappsins liggja ljósar fyrir og það er mat þeirra sem komu að aðgerðum á vettvangi að viðbrögð Arnarlax, m.a. með því að kalla tafarlaust eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar vegna veðursins, hafi verið rétt. Áhafnir tveggja báta Arnarlax sem strax fóru á vettvang ásamt köfurum úr starfsliði félagsins náðu strax fullri stjórn á aðgerðum og öryggisþáttum,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Máttu tæma lónið Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Sjá meira