Gagnrýna vinnubrögð við vindorkugarð Sveinn Arnarsson skrifar 6. október 2016 07:00 Vindmylluturnarnir verða vel hærri en Hallgrímskirkja
Íbúar í Þykkvabænum gagnrýna harðlega hugmyndir fyrirtækisins Biokraft um uppbyggingu vindmyllugarðs á svæðinu. Um er að ræða 13 vindmyllur sem allar verða 150 metrar á hæð, tvöföld hæð Hallgrímskirkjuturns. Íbúi segir forsvarsmann fyrirtækisins hafa reynt að fá sig á band fyrirtækisins með landaskiptum og lægra rafmagnsverði. „Hann gaf mér vel undir fótinn með að við gætum haft hag af því að hafa landaskipti og bætti því við að ég myndi hafa mikinn hag af því. Einnig bauð hann mér miklu lægra rafmagnsverð, yrði vindmyllugarðurinn að veruleika,“ segir Jón Þórarinn Magnússon, íbúi á Bala í Þykkvabæ. Hann segist hafa gagnrýnt áformin á opnum fundi með íbúum þar sem hann hafi átt land sem þurfti að kaupa. „Steingrímur sagði undir rós að það gæti kannski verið mér í hag og ég haft kláran ávinning umfram aðra ef ég hætti að gagnrýna uppsetninguna.“ Biokraft hefur sent tillögu að matsáætlun til Skipulagsstofnunar. Engin lög eru til um vindorkubú sem þessi og þurfa framkvæmdirnar ekki að fara í gegnum umfjöllun í rammaáætlun. Það er álit Orkustofnunar að vindorka falli ekki undir lög um verndar- og orkunýtingaráætlun. Undir þau lög falla aðeins jarðhiti og fallvötn. Íbúar í Þykkvabænum hafa mótmælt harðlega áformum fyrirtækisins. Hafa íbúar safnað undirskriftum og haldið fundi um vindorkugarðinn. Gyða Árný Helgadóttir, íbúi í Þykkvabæ, segir fyrirhugaðar framkvæmdir rýra lífsgæði íbúanna sem og lækka verð fasteigna þeirra. „Það er of mikið í húfi hér en ávinningur sveitarfélagsins er ekki mikill. Það er enginn fjöldi sem mun vinna við þessar vindmyllur. Einnig er bæði hljóð- og sjónmengun af þessu. Hér eru mikil víðerni og langt í næstu fjallgarða og því munu 150 metra háar vindmyllur breyta ásýnd þessa ferðamannasvæðis gríðarlega,“ segir Gyða Árný.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira