Konur fimm prósent af greiðendum meðlags Sveinn Arnarsson skrifar 7. október 2016 07:00 Kristín Ástgeirsdóttir jafnréttistýra. vísir/valli
Aldrei hafa jafn margir Íslendingar greitt meðlag ef miðað er við 1. janúar síðastliðinn. Alls voru 11.725 einstaklingar meðlagsskyldir í upphafi árs. Aðeins rétt rúmlega fimm prósent meðlagsgreiðenda eru konur, eða 687 talsins. 11.308 karlar eru meðlagsskyldir hér á landi. „Maður sér þetta á mörgum stöðum í tölum Tryggingastofnunar til dæmis,“ segir Kristín Ástgeirsdóttir jafnréttisstýra. „Það kemur mjög skýrt fram að konur með börn eru í meirihluta þeirra sem fá fátæktaraðstoð og að konur eru líklegri til að vera öryrkjar en karlar. Það er eitthvað í kerfinu sem við þurfum að skoða mun betur.“ Forsjármálum hefur fjölgað mikið undanfarið hjá dómstólunum og segir Dagný Rut Haraldsdóttir, lögfræðingur hjá Félagi einstæðra foreldra, dómstóla vera að drukkna í forsjármálum milli foreldra. „Við höfum bent á að það þurfi að efla svokallaða sáttamiðlun og erum að fara af stað með það verkefni,“ segir Dagný Rut. „Með því gæti verið unnt að draga úr álagi á dómskerfið, málum sem margir hverjir vilja leysa utan dómstólanna með örlítilli aðstoð.“ Fram kemur í gögnum Innheimtustofnunar sveitarfélaga, sem sér um innheimtu meðlagskrafna, að yngsti meðlagsskyldi einstaklingurinn er 17 ára barn. Sá elsti sem greiðir meðlag í dag er hins vegar níræður, fæddur árið 1926. Að sögn Braga Axelssonar, lögfræðings Innheimtustofnunar, eru börn ekki rukkuð um meðlag fyrr en þau ná 18 ára aldri og fá þau aðstoð og ráðleggingar með forráðamönnum um hvernig sé best að haga málum. Kristín segir þessa sterku stöðu konunnar í tölunum kannski ekki endurspegla allan sannleikann þar sem barn getur enn ekki haft tvö lögheimili. Því fari lögheimilið oft til móður. „Þetta var hugsað sem stuðningur við fátækar mæður í upphafi. Fram til ársins 1920 var það þannig að ef feður viðurkenndu óskilgetið barn öðluðust þeir allan rétt án þess að móðirin hefði nokkuð um það að segja. Þessi sterka staðar móður kostaði því mikla baráttu,“ segir Kristín. „Við skulum ekki gleyma að hagsmunir barnsins eiga að vera í fyrirrúmi en ekki réttur feðra eða mæðra. Þetta á að vera spurning um hvar barninu líður best.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira