Ísland getur orðið vettvangur friðarumleitana Heimir Már Pétursson skrifar 7. október 2016 19:45
Höfða friðarsetri í Reykjavík var formlega hleypt af stokkunum í dag. Forseti íslands sagði á fyrstu ráðstefnu setursins að Ísland geti haft hlutverki að gegna í að koma á friði í heiminum. Þegar Yoko Ono veitti Ono/Lennon friðarverðlaunin í Höfða fyrir tveimur árum tilkynnti borgarstjórinn í Reykjavík að stefnt væri að stofnun friðarseturs í Reykjavík sem kennt yrði við Höfða í samvinnu við Alþjóðastofnun Háskóla Íslands. Í dag varð þessi hugmynd að veruleika þegar fyrsta ráðstefna Höfða friðarseturs í Reykjavík var haldin. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands ávarpaði samkomuna en hann telur Íslendinga geta lagt sitt að mörkum í friðarmálum. „Við erum herlaus þjóð. Við höfum ekki kynnst styrjöldum á eigin grundu. En orð eru til alls fyrst og að stofna friðarsetur og kenna það við Höfða held ég að geti skipt máli. Orðið Höfði hefur í huga margra tilvísun til friðarumleitunar. Afvopnunar og notum það sem við höfum og reynum að verða að liði. Það er það sem þetta snýst um,“ segir Guðni. Pía Hanson forstöðumaður friðarsetursins segir tilganginn með setrinu m.a. að tengja borgina og Háskólann saman á vettvangi rannsókna á stríði og friði og marka friðarstefnu fyrir borgina. „Og við stefnum að námsbraut í átaka- og friðarfræðum við Háskóla íslands,“ segir Pía. Þannig að þið ætlið ykkur að rannsaka bæði stríð og frið? „Já, það er í rauninni ekki hægt að rannsaka þetta í sitt hvoru lagi. Þetta verður eiginlega að hanga saman til að maður skilji það almennilega,“ segir Pía. Þótt Reykjavík og Ísland séu lítil í kór þjóðanna geti bæði borg og land verið vettvangur friðar. „Við erum ekki álitin ógnandi á nokkurn hátt. Og það gefur okkur kannski visst færi á því að búa til þennan vettvang,“ segir hún. Forsetinn tekur undir þetta sjónarmið. „Við hljótum oft að spyrja okkur í örvæntingu hvað getum við gert. En þótt við getum stigið lítil skref eru þau kannski upphaf að einhverju. Það er að minnsta kosti skárra að gera eitthvað en ekki neitt,“ segir forseti Íslands.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Fleiri fréttir Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Sjá meira