Traktor dugði til að hræða hvítabirnina Kristján Már Unnarsson skrifar 21. september 2016 11:00 Hvítabirnir á flótta. Myndin er úr safni.
Rússnesku vísindamennirnir fimm, sem hvítabirnir sátu um á lítilli eyju í Norður-Íshafinu, eru nú lausir úr umsátrinu. Jafnframt hefur tekist að koma til þeirra nýjum vistum með þyrlu, sem send var frá skipi. Eins og fram kom í frétt Vísis í síðustu viku dvöldu vísindamennirnir á veðurstöð á eyju í Karahafi norður af Síberíu þegar hópur hvítabjarna settist um húsið. Vísindamennirnir höfðu fyrirmæli um að reyna að fæla þá burt með neyðarblysum og háværum flautum en allt kom fyrir ekki. Að lokum fundu þeir þó aðferð sem dugði. Þeir ræstu traktor og þannig tókst þeim að hrekja birnina brott í örugga fjarlægð, að minnsta kosti tímabundið, samkvæmt frétt The Barentsobserver. Svo þegar þyrlan kom fljúgandi var hægt að hræða þá enn lengra í burtu. Eyjan er um fimmtán kílómetrar á lengd og fimm kílómetrar að breidd. Venjulega hafa 4-6 birnir haldið sig á eynni fjarri veðurstöðinni án þess að vísindamenn hafi þurft að hafa áhyggjur. Í sumar hafa birnirnir hins vegar verið 8-9 talsins og er ástæðan rakin til hlýinda. Til að tryggja öryggi vísindamanna á slóðum hvítabjarna hafa rússnesk stjórnvöld nú ákveðið að koma upp rafmagnsgirðingum umhverfis rannsóknarstöðvar á heimskautasvæðum.
Tengdar fréttir Ísland eina landið sem kerfisbundið drepur hvítabirni Umhverfisstofnum gagnrýnd fyrir að gera ekkert til að forðast dráp. 15. september 2016 11:00 Ísbirnir sitja um vísindamenn Fimm rússneskir vísindamenn sem staðsettir eru á lítilli eyju í Norður Íshafinu eru umkringdir af um tíu ísbjörnum og hafa verið það síðustu tvær vikurnar. 14. september 2016 08:53 Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Sjá meira
Ísland eina landið sem kerfisbundið drepur hvítabirni Umhverfisstofnum gagnrýnd fyrir að gera ekkert til að forðast dráp. 15. september 2016 11:00
Ísbirnir sitja um vísindamenn Fimm rússneskir vísindamenn sem staðsettir eru á lítilli eyju í Norður Íshafinu eru umkringdir af um tíu ísbjörnum og hafa verið það síðustu tvær vikurnar. 14. september 2016 08:53