Án nýsköpunar og þróunar deyja fyrirtæki Sæunn Gísladóttir skrifar 22. september 2016 10:15 Marc J. Epstein er prófessors við Rice University í Bandaríkjunum, og hefur síðustu ár veitt fyrirtækjum á borð við Apple og Google ráðgjöf. Fréttablaðið/Stefán Karlsson
Ef fyrirtæki eru ekki dugleg að þróa vörur sínar og viðskiptamódel verða þau úrelt og missa markaðshlutdeild sína til keppinauta. Þetta kom fyrir Sony með Walkman og Blockbuster Video, svo eitthvað sé nefnt. Þetta segir Marc J. Epstein, prófessors við Rice University í Bandaríkjunum. Epstein hefur síðustu fimmtán ár sérhæft sig í að veita stórfyrirtækjum ráðgjöf varðandi nýsköpun innan fyrirtækja og hélt erindi um þetta á ráðstefnu á vegum viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík og Opna háskólans, í samstarfi við Icelandic Startups á þriðjudaginn. „Ég hef veitt fjölda forstjóra stórfyrirtækja ráðgjöf í þessum málum og það sem er áhugavert er að enginn þeirra trúir því að þeirra vara geti orðið úrelt. Þeir skilja það sem kom fyrir BlackBerry og Barnes & Noble, en átta sig ekki á að breytingar eru að eiga sér stað í þeirra geira,“ segir Epstein. „Nýsköpun hefur alltaf verið fyrirtækjum mikilvæg en hefur orðið mikilvægari með árunum vegna aukinnar samkeppni og á það bæði við nýsköpun í tækni og innan viðskiptamódela. Fyrirtæki eru að átta sig á því að til þess að ná árangri þurfa þau á nýsköpun að halda; ef þau finna ekki leiðir til nýsköpunar deyja þau einfaldlega,“ segir Epstein. „Nýsköpun er svo vítt hugtak, það getur átt við nýja vöru en einnig nýja leið til að selja vöru, Amazon er gott dæmi um það. Það er tvenns konar nýsköpun sem á sér stað innan fyrirtækja, annars vegar stigvaxandi nýsköpun sem snýst meira um að breyta til dæmis lit á vöru eða útliti hennar. Hins vegar er það byltingarkennd nýsköpun, sem fyrirtæki þurfa mest á að halda í dag til að virkilega breyta geiranum,“ segir hann. Epstein segir að flestir tengi nýsköpun við sprotafyrirtæki eða tæknirisa eins og Apple og Samsung sem eru alltaf að þróa vörur sínar. Hins vegar séu öll stórfyrirtæki í dag að huga að nýsköpun til að ná árangri. „Í bílageiranum er til dæmis gríðarleg þróun, í hybrid-bílum, rafmagnsbílum og sjálfkeyrandi bílum.“ Að mati Epsteins getur skriffinnska og hugarfar innan stórfyrirtækja staðið í vegi fyrir byltingarkenndri nýsköpun. „Hún getur hins vegar átt sér stað þegar stórfyrirtæki einbeita sér að lausnum en ekki vandamálum. Þau þurfa að innleiða hugarfar sprotafyrirtækja og setja upp sérdeild með sérfjármagn sem lýtur bara forstjóra fyrirtækisins til að ná fram þessari nýsköpun. Þetta er hægt á Íslandi eins og annars staðar, það þarf ekki mikið af fólki og fjármagni, en deildirnar þurfa frelsi til að mistakast og skila ekki hagnaði.“
Mest lesið Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Viðskipti innlent Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Sjá meira