Viðvörunarorð Bjargar um stjórnarskrána hundsuð af meirihlutanum á Alþingi Heimir Már Pétursson skrifar 23. september 2016 12:43 Björg Thorarensen telur tilskipunina ekki rúmast innan ramma stjórnarskrár. Vísir/Vilhelm
Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar samþykkti í morgun að afgreiða út úr nefndinni þingsályktun um tilskipun Evrópusambandsins um fjármálaþjónustu, sem helsti sérfræðingur þjóðarinnar í stjórnskipunarrétti telur að brjóti gegn stjórnarskrá. Atkvæðagreiðsla um ályktunina hófst á Alþingi skömmu fyrir klukkan 12. Atkvæðagreiðslu um innleiðingu ESB tilskipunar um fjármálaþjónustu var frestað á Alþingi í gær vegna efasemda sem komu um að hún stæðist stjórnarskrána. Málið fór til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sem fundaði um málið í gær og svo aftur í morgun. Þar var lögð fram greinargerð frá Björgu Thorarensen, helsta sérfræðingi þjóðarinnar í stjórnskipunarrétti, en hún hafði áður viðrað opinberlega skoðanir sínar um að tilskipunin rúmaðist ekki inna ramma stjórnarskrárinnar. Í greinargerðinni rekur Björg þróun mála allt frá gildistöku EES samningsins árið 1992 þar sem gert sé ráð fyrir framsali á fullveldi til yfirþjóðlegra stofnana á takmörkuðu sviði, þ.e.a.s. í samkeppnismálum. Björg segir augljóst að framsalið fari ekki lengur fram á þessu takmarkaða sviði. Samkvæmt tilskipuninni um fjármálaþjónustu geti úrræði verið afar íþyngjandi fyrir innlenda aðila. Dæmi um það sé að ESA geti stöðvað rekstur fyrirtækja á fjármálamarkaði. Niðurstaðan sé að meginforsendan frá 1992 sé brostin. Þrátt fyrir þessi aðvörunarorð Bjargar ákvað meirihluti stjórnsýslu- og eftirlitsnefndar í morgun að senda málið á ný til atkvæðagreiðslu á Alþingi í dag, sem kom Árna Páli Árnasyni fulltrúa Samfylkingarinnar í nefndinni á óvart.Tillaga frá minnihlutanum um að bætt verði ákvæði um framsal fullveldis í stjórnarskrána, fellt í stjórnskipunar og eftirlitsnefnd.VísirUndrandi á ákvörðun meirihlutans „Já ég var satt að segja mjög hissa á því að meirihluti nefndarinnar felldi tillögu sem ég lagði fram um að við myndum leita samstöðu allra flokka um að setja framsalsákvæði í stjórnarskrána. Sem gerði framsal af þessum toga mögulegt. Þannig að allir flokkar gætu verið sammála um það en það var fellt,“ segir Árni Páll. Þar með hafi meirihlutinn ákveðið að bregðast ekki við ábendingum Bjargar og Stefáns Más Stefánssonar fyrrverandi prófessors sem einnig telji að tilskipunin rúmist ekki innan stjórnarskrárinnar. „Með þessum framgangi er stjórnarmeirihlutinn einfaldlega að segja að það ákvæði stjórnarskrárinnar um að íslensk stjórnvöld eigi að fara með stjórnvald á Íslandi þýði ekki neitt. Og að Alþingi geti á hverjum tíma framselt hvaða alþjóðastofnun sem er það vald,“ segir Árni Páll. Það standi hvergi í stjórnarskránni að heimilt sé að framselja vald til alþjóðastofnana þótt menn hafi talið það heimilt á takmörkuðum sviðum. Þess vegna sé nauðsynlegt að setja ákvæði um þau mál í stjórnarskrána.Árni Páll Árnason alþingismaður.Í Morgunblaðinu í dag er haft eftir Ögmundi Jónassyni formanni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, sem er staddur í útlöndum, að hann sé á móti því að setja slíkt ákvæði í stjórnarskrá. Það myndi auðvelda Íslendingum að kokgleypa allt sem frá Brussel kæmi. „Ég held að það sé alger misskilningur hans á eðli málsins. Ef það væri framsalsákvæði í stjórnarskrá sem afmarkaði hvað hægt væri að gera, myndi það þvert á móti takmarka möguleika til að afhenda alþjóðastofnunum vald. Núna er staðan sú að stjórnarmeirihlutinn er að skapa það fordæmi að það mun ekki þurfa að breyta stjórnarskránni ef við göngum í Evrópusambandið. Ef meirihluti Alþingis ákveður eitthvað er bara hægt að gera hvað sem er. Jafnvel þótt stjórnarskráin segi eitthvað annað. Það er fordæmið sem nú er verið að skapa,“ segir Árni Páll Árnason. Atkvæðagreiðsla um tillöguna hófst rétt fyrir klukkan tólf. Reikna má með að hún standi yfir í all nokkurn tíma, þar sem þingmenn munu margir gera grein fyrir atkvæði sínu og þurfa að ræða fundarstjórn forseta áður en lokaatkvæðagreiðslan fer fram.
Tengdar fréttir Össur sakar stjórnarmeirihlutann um að vaða yfir stjórnarskrána á skítugum skónum Atkvæðagreiðslu um ESB tilskipun um fjármálastofnanir frestað vegna efasemda um að hún standist stjórnarskrá. 22. september 2016 14:36 ESB tilskipun reynir á þanþol stjórnarskrárinnar á Alþingi Helsti stjórnskipunarfræðingur landsins segir tilskipun ESB um fjármálaþjónustu ekki rúmast innan ramma stjórnarskrár Íslands. 22. september 2016 19:45 Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Fleiri fréttir Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Sjá meira
Össur sakar stjórnarmeirihlutann um að vaða yfir stjórnarskrána á skítugum skónum Atkvæðagreiðslu um ESB tilskipun um fjármálastofnanir frestað vegna efasemda um að hún standist stjórnarskrá. 22. september 2016 14:36
ESB tilskipun reynir á þanþol stjórnarskrárinnar á Alþingi Helsti stjórnskipunarfræðingur landsins segir tilskipun ESB um fjármálaþjónustu ekki rúmast innan ramma stjórnarskrár Íslands. 22. september 2016 19:45