Þurfa aukalán á þriðja milljarð til að ljúka framkvæmdum Sveinn Arnarsson skrifar 28. september 2016 07:00 Vaðlaheiðargöng tryggja samgöngur milli Eyjafjarðar og Þingeyjarsýslna að vetrarlagi. Göngin voru umdeild á sínum tíma og eru vísast enn vísir/auðunn
Unnið er að því hjá eigendum Vaðlaheiðarganga að sækja um aukalán til ríkissjóðs upp á um 2,5 milljarða króna til að geta klárað framkvæmdir við göngin. Bergþéttingar vegna heits vatnsaga í göngunum og hrun úr gangaloftinu skýra að mestu leyti framúrkeyrslu ganganna. „Nú eigum við um 17 prósent eftir af gangagreftrinum sjálfum. Þegar þeirri vinnu er lokið er hægt að áætla með mun meiri nákvæmni hversu dýr göngin verða þegar upp er staðið,“ segir Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga hf. „Langmesta óvissan er í greftrinum sjálfum en vegna atvika, sem ekki var hægt að sjá fyrir, verða göngin dýrari en gert var ráð fyrir í upphafi.“ Þegar Alþingi samþykkti framkvæmdina, þann 14. júní árið 2012, áttu þau að kosta 8,7 milljarða króna án virðisauka. Að sögn Valgeirs er líklegt að göngin muni enda eitthvað á milli 13 og 14 milljarða að núvirði og verða opnuð fimmtán mánuðum á eftir áætlun, eða í byrjun árs 2018.Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga hf.„Við erum að vinna í því að spara sem mest við getum í öðrum þáttum og velta hverri krónu. Allir þeir liðir sem hafa valdið kostnaðarauka eru liðir sem ekki er hægt að rannsaka áður en farið er í framkvæmdir svo það er ekki við neinn að sakast í þeim efnum,“ segir Valgeir. Ekkert hefur gengið í gangagreftri Fnjóskadalsmegin síðan í apríl í fyrra þegar hvort tveggja varð að kalt vatn fyllti göngin og um 1.500 rúmmetrar af efni hrundu úr gangaloftinu. „Við erum að fara að sjá fyrir endann á stoppinu Fnjóskadalsmegin og munum innan næstu tveggja vikna fara að sprengja þar. Þá getum við farið að vinna í báðum stöfnum samtímis og aukið framkvæmdahraðann,“ segir Valgeir. Þótt göngin verði að endingu dýrari en gert var ráð fyrir í upphafi er enn ekki loku fyrir það skotið að þau verði að fullu greidd með veggjöldum. Á sama tíma hefur umferð aukist gríðarlega á svæðinu.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira