Kvartaði eftir að hafa verið kallaður asni Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 27. september 2016 23:43 Fangi á Litla-Hrauni kvartaði undan framkomu starfsmanns. vísir/Anton brink
Umboðsmaður Alþingis hefur vísað erindi fanga á Litla-Hrauni, sem kvartaði undan framkomu starfsmanns fangelsisins í sinn garð, aftur til fangelsismálastofnunar og innanríkisráðuneytisins. Var framangreindum stjórnvöldum gert að tryggja skilvirkari farveg í slíkum kvörtunarmálum. Fanginn sendi inn kvörtun eftir að starfsmaður í fangelsinu kallaði hann „helvítis“ eða „andskotans“ asna og sagði honum að „snáfa í burtu“. Sögur fangans og starfsmannsins stangast þó á samkvæmt gögnum málsins, en fanginn sagðist hafa orðið þunglyndur í viku eftir orð starfsmannsins. Fanginn segir í bréfi til forstöðumanns fangelsisins að starfsmaðurinn hafi orðið reiður vegna kvörtunarinnar. Hann hafi endurtekið orð sín um að hann væri „helvítis asni“ og þá í viðurvist fanga. Segist fanginn hafa upplifað ógnandi tilburði af hálfu starfsmannsins. „Ég var alveg rólegur allan tímann og reyndi mjög rólega að ræða við han nen hann gaf mér engan séns á því. Atvikið kom upp í viðurvist vinnufélaga míns auk þess sem það er sjálfsagt til í myndavélakerfi fangelsisins,“ segir í bréfinu. Hafi hann orðið stressaður og ekki getað einbeitt sér með lærdóm, ásamt því sem hann hafi orðið fyrir miklu áfalli. Starfsmaðurinn sagði fangann hafa sakað fangaverði um líkamsmeiðingar og að í kjölfarið hafi þeir átt í orðaskiptum. Eftir kvörtunina hafi hann talað við fangann, sem hafði krafist afsökunarbeiðni, og sagt honum að hann ætti sjálfur að biðjast afsökunar á ummælum um meintar líkamsmeiðingar fangavarða. „Fanginn vildi ekki biðjast afsökunar á orðum sínum en sagði að ég ætti að gera það. Rangt er haft eftir mér í bréfi fangans að ég hafi endurtekið að hann væri „helvítis asni“ ég sagði við fangann að ég vissi vel hvað ég hefði sagt við hann þann 2.apríl, ég hefði sagt að hann væri asni. Einnig er rangt í bréfi fangans að ég hafi gert mér sérstaka ferð inn á vinnustað hans til að agnúast út í hann, ég geri mér far um að koma á vinnustaði fanga með reglulegu millibili,“ segir í bréfi starfsmannsins til fangelsisins. Fanginn segir að vegna skorts á svörum frá fangelsisyfirvöldum hafi kvörtunin verið send til innanríkisráðuneytisins. Í kjölfarið sendi hann málið til umboðsmanns Alþingis en í niðurstöðu hans er þeim tilmælum beint til fangelsisins, fangelsismálastofnunar og innanríkisráðuneytisins að hugað verði að því að koma meðferð og úrlausn kvartana fanga vegna háttsemi starfsmanna fangelsanna í þeirra garð í tryggari og skilvirkari farveg en raun hafi verið í þessu máli.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Sjá meira