Kattafló greinist á Suðurlandi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 28. september 2016 14:06 Þessar kisur eru vonandi ekki með kattafló. vísir/getty
Kattafló fannst á ketti á Suðurlandi í liðinni viku en það er fyrsta staðfesta greiningin á flónni utan höfuðborgarsvæðisins. Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að kattaflóin sé nýr landnemi hér á landi sem hafi fyrst greinst hér síðastliðinn vetur. Flóin getur bæði valdið dýrum og mönnum miklum óþægindum og jafnvel veikindum. „Dýralæknir hjá Dýralæknaþjónustu Suðurlands tilkynnti Matvælastofnun í síðustu viku um grun um kattafló á köttum á býli í Flóanum. Flær voru sendar til Tilraunastöðvar Háskóla Íslands á Keldum sem staðfesti að um kattafló væri að ræða. Matvælastofnun rannsakar nú hvernig flóin getur hafa borist á býlið og hvort hún leynist á köttum eða hundum sem tengjast býlinu. Jafnframt er í undirbúningi samræmd meðhöndlun á dýrum á býlinu sem flóin greindist á og tengdum heimilum,“ segir í tilkynningu MAST. Stefna stofnunarinnar er að uppræta kattafló og hindra að hún nái fótfestu hér á landi. Þar af leiðandi er mikilvægt að katta- og hundaeigiendur sem og dýralæknar séu vel á varðbergi og sendi Matvælastofnun tilkynningu ef grunur leikur á smiti. „Flóin er það stór að auðvelt er að sjá hana með berum augum, en hún hreyfir sig hratt og því getur verið erfitt að koma auga á hana á dýrum með þéttan eða dökkan feld. Oft er auðveldara að sjá saur flónna en hann minnir helst á sandkorn í feldinum. Kláði getur verið mismikill og hjá sumum dýrum alls ekki áberandi. Önnur dýr geta sýnt ofnæmisviðbrögð við flóabitunum og fá sár og skorpur í húðina sem svo geta sýkst og einkennin líkjast þá exemi eða húðsýkingu. Góð leið til að skoða hvort dýrið sé smitað af flóm er að láta það standa á hvítu laki og nota t.d. lúsakamb og kemba í gegn um feldinn,“ segir í tilkynningu.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Fleiri fréttir Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Sjá meira