Púað á Bjarna á fundi eldri borgara Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 28. september 2016 21:24 Fulltrúar allra stjórnmálahreyfinganna sátu fyrir svörum á fundi Félags eldri borgara og Gráa hersins í Háskólabíói í kvöld. skjáskot
Fundargestir á fundi Félags eldri borgara og Gráa hersins í Háskólabíói í kvöld virtust nokkuð ósáttir við svör Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, um kaup og kjör aldraðra. Púuðu viðstaddir og hrópuðu og þurfti fundarstjóri að grípa inn í á einum tímapunkti. Bjarni uppskar lætin eftir að hafa sagt ríkisstjórnarflokkana hafa á þessu kjörtímabili beitt sér fyrir betri kjörum aldraðra og öryrkja. Hann fékk þó ekki að klára setninguna en eftir að fundarstjóri bað um þögn í salnum gafst Bjarna tækifæri til þess að útskýra mál sitt. Sagði Bjarni að það frumvarp sem liggi nú fyrir á Alþingi hafi verið unnið í víðtæku samstarfi við Landssamband eldri borgara. „Það sem um er að ræða í þessu frumvarpi er að við ætlum að einfalda til muna bótakerfið og hætta skerðingum krónu fyrir krónu. Við ætlum að hækka heildarbótagrunninn þannig að það fara fimm milljarðar til viðbótar inn í kerfið. Við ætlum að búa þannig um hnútana að yfirgnæfandi meirihluti allra sem í dag fá bætur úr almannatryggingakerfinu mun verða betur settur með þessu frumvarpi,“ sagði Bjarni. Fulltrúi Framsóknarflokksins á fundinum, Karl Garðarsson, fékk þó ekki eins slæma útreið og Bjarni. Karl sagði Framsóknarflokkinn flokk sem leggi mikla áherslu á velferð og málefni aldraðra og að mikilvægt sé að úr kjörum þeirra verði bætt. Sjálfur hafi hann reynt að berjast fyrir málaflokknum. „Ég hef komist að því í gegnum mína fjölskyldu og aðra nákomna að fólk þekkir ekki sín réttindi. Þetta er mikill frumskógur þessi tryggingamál aldraðra og ég komst að því þegar ég þurfti að annast nákominn ættingja að ég skildi þetta ekki einu sinni sjálfur og þurfti að leita í kerfinu að því hvaða réttindi þessi aðili ætti. Ég komst að því að það eru fjölmargir aldraðir sem vita þetta ekki. Þeir fara á mis við það sem þeir eiga rétt á í þjóðfélaginu og það er óþolandi,“ sagði Karl.Fundinn má sjá með því að smella hér.
Tengdar fréttir Í beinni: Stjórnmálahreyfingar sitja fyrir svörum á fundi Félags eldri borgara og Gráa hersins Bein útsending frá fundinum. 28. september 2016 19:15 „Mun halda áfram þar til sigur vinnst“ „Saman stöndum við vaktina um að við séum með í ráðum um okkar eigin efri ár," segir formaður Félags eldri borgara. 28. september 2016 21:42 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Sjá meira
Í beinni: Stjórnmálahreyfingar sitja fyrir svörum á fundi Félags eldri borgara og Gráa hersins Bein útsending frá fundinum. 28. september 2016 19:15
„Mun halda áfram þar til sigur vinnst“ „Saman stöndum við vaktina um að við séum með í ráðum um okkar eigin efri ár," segir formaður Félags eldri borgara. 28. september 2016 21:42