Bónusgreiðslurnar samþykktar á fundi stjórnar Kaupþings Birgir Olgeirsson skrifar 30. ágúst 2016 20:31 Höfuðstöðvar Kaupþings í Borgartúni þar sem nú eru höfuðstöðvar Arion banka. Vísir/GVA
Tillaga um kaupaukagreiðslur starfsmanna eignarhaldsfélags Kaupþings var samþykkt á aðalfundi stjórnar félagsins í kvöld. Frá þessu er greint á vef RÚV. Fundurinn fór fram fyrir luktum dyrum á Hilton-hótelinu í Reykjavík nú síðdegis en á vef RÚV kemur fram að fulltrúi stjórnar eignasafns Seðlabanka Íslands greiddi atkvæði gegn tillögunni. Tillagan hefur verið harðlega gagnrýnd, þar á meðal af þingmönnum og ráðherrum, en samkvæmt henni geta bónusgreiðslur til starfsmanna numið allt að einum og hálfum milljarði í heildina, sem gerir á milli 50-100 milljónir á mann. Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði á Alþingi í dag að hann vildi leggja 90 til 98 prósenta skatt á bónusgreiðslur bankamanna svo tryggt væri að þau framlög slitabúana myndu ekki lenda hjá fámennum hopi heldur allri þjóðinni.Sjá einnig: Vilja leggja himinháa skatta á bónusgreiðslurnar Valgerður Bjarnadóttir þingmaður Samfylkingarinnar vill einnig leggja skatta á bónusgreiðslurnar. Hún sagði það endurspeglast í umræðum um bónusgreiðslurnar á þingi að þingmenn væru í ágætum tengslum við þjóðina enda gæti hún gert sér í hugarlund að um fátt annað væri rætt á kaffistofum landsins. Valgerður sagði það ekki vera svo að ekkert væri hægt að gera; það væri einfaldlega hægt að leggja mjög háa skatta á greiðslurnar. Karl Garðarsson þingmaður Framsóknarflokksins sagði fréttirnar af bónusgreiðslunum bæði ömurlegar og fyrirsjáanlegar. Í síðustu viku líkti Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra þessum bónusgreiðslum við sjálftöku.
Tengdar fréttir Ræddu bónusgreiðslur bankamanna á þingi Fjármálaráðherra taldi ekki þarft að tvítaka gagnrýni sína á fundi með bankamönnum. 29. ágúst 2016 15:33 BSRB telur bónusgreiðslur Kaupþings óásættanlegar Í yfirlýsingu frá samtökunum er skorað á Alþingi að lagfæra þann ramma sem fjármálafyrirtækjum er settur til að umbuna starfsmönnum sínum. 28. ágúst 2016 09:39 Þingmenn fordæma bónusgreiðslur Kaupþings Þingmenn lykilflokka Alþingis segja fyrirhugaðar bónusgreiðslur Kaupþings vera siðlausar og engan veginn í takt við kjör almennings. Vilja endurskoða skattalöggjöf. 26. ágúst 2016 14:43 Vilja leggja himinháa skatta á bónusgreiðslurnar: „Þetta verður að stöðva með öllum ráðum“ Bónusgreiðslur til starfsmanna Kaupþings og gamla Landsbankans voru ræddar á Alþingi í dag. 30. ágúst 2016 14:32 Bónusgreiðslur Kaupþings jafnháar launum allra starfsmanna Barnaspítala Hringsins Ásgeir Haraldsson yfirlæknir á Barnaspítala Hringsins og prófessor í barnalækningum gagnrýnir bónusgreiðslur til nokkurra lykilstarfsmanna eignarhaldsfélagsins Kaupþings en ýmsir stjórnmálamenn hafa í vikunni gagnrýnt greiðslurnar eftir að DV greindi frá þeim á þriðjudag. 26. ágúst 2016 19:12 Gætu fengið hundruð milljóna í bónus Markmið bónuskerfisins er að búa til hvata fyrir umrædda stjórnendur til að hámarka virði óseldra eigna félagsins. 30. ágúst 2016 10:12 Stjórnarmenn Kaupþings notuðust við bakdyr Mótmælendur og fjölmiðlamenn höfðu beðið þeirra við aðalinngang Hilton-hótelsins. 30. ágúst 2016 18:10 Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Fundað í flugvirkjadeilu Innlent Fleiri fréttir Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Sjá meira
Ræddu bónusgreiðslur bankamanna á þingi Fjármálaráðherra taldi ekki þarft að tvítaka gagnrýni sína á fundi með bankamönnum. 29. ágúst 2016 15:33
BSRB telur bónusgreiðslur Kaupþings óásættanlegar Í yfirlýsingu frá samtökunum er skorað á Alþingi að lagfæra þann ramma sem fjármálafyrirtækjum er settur til að umbuna starfsmönnum sínum. 28. ágúst 2016 09:39
Þingmenn fordæma bónusgreiðslur Kaupþings Þingmenn lykilflokka Alþingis segja fyrirhugaðar bónusgreiðslur Kaupþings vera siðlausar og engan veginn í takt við kjör almennings. Vilja endurskoða skattalöggjöf. 26. ágúst 2016 14:43
Vilja leggja himinháa skatta á bónusgreiðslurnar: „Þetta verður að stöðva með öllum ráðum“ Bónusgreiðslur til starfsmanna Kaupþings og gamla Landsbankans voru ræddar á Alþingi í dag. 30. ágúst 2016 14:32
Bónusgreiðslur Kaupþings jafnháar launum allra starfsmanna Barnaspítala Hringsins Ásgeir Haraldsson yfirlæknir á Barnaspítala Hringsins og prófessor í barnalækningum gagnrýnir bónusgreiðslur til nokkurra lykilstarfsmanna eignarhaldsfélagsins Kaupþings en ýmsir stjórnmálamenn hafa í vikunni gagnrýnt greiðslurnar eftir að DV greindi frá þeim á þriðjudag. 26. ágúst 2016 19:12
Gætu fengið hundruð milljóna í bónus Markmið bónuskerfisins er að búa til hvata fyrir umrædda stjórnendur til að hámarka virði óseldra eigna félagsins. 30. ágúst 2016 10:12
Stjórnarmenn Kaupþings notuðust við bakdyr Mótmælendur og fjölmiðlamenn höfðu beðið þeirra við aðalinngang Hilton-hótelsins. 30. ágúst 2016 18:10
Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent
Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent